Átti Goggur frændi ekki að koma með næsta forföður hvurnig er það?
Vímus er ekki skrifað einhversstaðar að syndir feðranna komi niður á afkomendum í 9. og 10. lið. Brestur í óstöðvandi grát
Hér kemur einn langsóttur
Vilhjálmur Arnfinnsson - Galdra-Vilki f.1620
Það vill svo skemmtilega til að þetta er 8xlanga afi minn.
Villi var líka forfaðir minn... frábært, Eymingi, feministi og Goggurinn eru þá opinberlega ættmenni mín, sjálfsagt fleiri á eftir að skoða alla hehe
Goggur, ætlarðu ekki að koma með nýjan áa?
Eftir nánari skoðun, þá er Vímus líka frændi minn, Skál
Átti Goggur frændi ekki að koma með næsta forföður hvurnig er það?
Vímus er ekki skrifað einhversstaðar að syndir feðranna komi niður á afkomendum í 9. og 10. lið. Brestur í óstöðvandi grát
Græt með þér. Örlögin verða ekki umflúin.
Var ekki e-r annar ái í gangi? Mér fannst þetta bara skemmtileg tilviljun, vonandi lagði ég eki leikinn í rúst...
Ég skelli þá snöggvast inn einum forföður:
Stefán Sigurðsson
Fæddur í Hofteigssókn í Jökuldal, N-Múl. um 1762
Látinn í Skorrastaðarsókn, S-Múl. 16. apríl 1838
Bóndi á Barðsnesi, Skorrastaðarsókn, S-Múl. 1801. "Smiður góður og vel virtur, en fremur fátækur", segir Einar prófastur. Lengst af bóndi og smiður í Fannardal í Skorrastaðarsókn, S-Múl.
(er ég ekki alveg örugglega að skilja þetta rétt?)
Jú, þú skilur rétt, í hvaða lið er hann, gaman að fá að vita það...
Hann er ekki forfaðir minn, Goggurinn minn...
Í hvaða lið segirðu, hann er 5x langa afi minn. (er það e.t.v. of lítið?)
Ekki minn heldur. Ég er bara engum skyldur hérna.
Brestur í óstöðvandi grát
Það er þá væntanlega sjöundi liður, við erum eiginlega farin að notast meira við svona áttunda til tíunda lið til að auka líkur á skildleika... þú mátt senda annan áa inn ef þú vilt...
Ég geri það bara snöggvast.
Ófeigur Þorláksson
Fæddur 1650
Bóndi í Byggðarholti, Lónkálki, A-Skaft. 1703
Hann er mér skyldur í 10. lið.
Enginn skyldleiki fannst...
Á barmi taugaáfalls...
Laumar einum forföður inn til að Halli fái ekki taugaáfall
Í tíunda lið:
Eyjólfur Jónsson
Fæddur 1643
Bóndi og hreppstjóri á Hópi og Þórkötlustöðum í Grindavík. Lögréttumaður.
Ekki hluti af leiknum, en ertu ekki skyldur þessum, Halli frændi hehe
Hann er allaveganna skyldur mér í 14. lið
Jú jú frændi. Mikil ósköp.
Ljómar upp