Hér er einn forfaðir:
Snorri Einarsson
Fæddur um 1731
Látinn um 1785
Bóndi í Höfn í Sléttuhr., Ís.
Sagður hafa átt um 20 börn, og þessvegna kallaður Barna-Snorri.
Sé miðað við barnafjöldann ættu afkomendur þessa góða manns að leynast víða
Þá ertu skyldur Vímusi (sjá bls hér á undan)
Hann kom með Barna-Snorra líka.
Jamm, ég var búinn að gefa það út að ég væri ekki kominn af honum... en Vímus gæti nú rokið hér inn og hirt spurnarréttinn ef enginn annar er skyldur honum Snorra...
Fjandinn likiorðið mitt fokið út í veður og vind. Brestur í óstöðvandi grát
Hvetur Harald til að ganga nú frá erfðaskránni
Gerir vafasamar áætlanir í leyni
Og hva....á ekki að láta Hakuchi frænda í erfðaskránna? Hmmm?
Gefur Haraldi vinalegt olnbogaskot og brosir með eftirvæntingu.
Veltir fyrir sér hvort ljótukallafjelagið hafi verið fjölmennara en hingað til hefur verið talið
Ó.
Lætur sérfræðinga meta servíettusafnið. Setur virði þess í töflureikni og gerir kostnaðar/ábatagreiningu á skyndilegu fráfalli Haraldar vs. virði servíettanna. Fær neikvætt NPV.
Hættir við Operation Cat's Nose.
Snorri Einarsson afi í 9. lið.
Hér kemur einn langsóttur
Vilhjálmur Arnfinnsson - Galdra-Vilki f.1620
Vilhjálmur Arnfinnsson (d. 1675) bjó á Þóroddsstöðum í Hrútafirði og var um tíma umboðsmaður Þorleifs Kortssonar og síðan sýslumaður Strandamanna. Fáar sögur fara af Vilhjálmi en hann var álitinn fjölkunnugur og almennt nefndur Galdra-Vilki.
Bogi Benediktsson segir í Sýslumannsæfum að flestir afkomendur hans hafi orðið ólánsmenn eða aumingjar Starir þegjandi út í loftið og víst er að Guðmundur sonur hans sýnist hafa verið ofstopamaður og prestur hans vildi meina að með göldrum hefði hann valdið fótbroti sínu.
Það hlýtur að duga. Grafðu upp einhverja múmíu fortíðarinnar Austmann.