Þetta er alveg hreint dásamleg mynd hjá þér rauðbjörn... alveg dásamleg.
Nú vantar bara Mjallhvíti með ákavítisflöskuna og sígarettu í munnvikinu og þá er þetta fullkomnað. klórar sér í höfðinu
Nú er ég byrjaður að reykja... takk Rauðbjörn. Ég sem hélt ég myndi sleppa. Árans þrýstingur og auglýsingaflæði alltaf hreint.
-
Það fyndna við Nepal er það að hreyfingar jarðskorunnar munu halda áfram að gera blessuð fjöllin þarna hærri og hærri þangað til þau steypast yfir sig og hrynja niður með tilheyrandi umbrotum og skilja þá eftir sig hásléttu ekki ósvipaða þeirri sem nú kallast Tíbet.
Ég er hræddur um að kommúnískir skæruliðar (sem eru vel að merkja þjálfaðir og vopnum búnir af útsendurum kínverska alþýðulýðveldisins) hafi ekki hugsað út í það þegar þeir lögðu af stað í stríðið!
Ég veit ekki hvort það er virkilega fyndið. Nepal er hrjáð land og mun víst verða um aldur og ævi.
já... nema þeir vinni í víkingalottóinu...
Í einhverjum alfræðibókum er snert á því að íbúar Nepal búi yfir svokölluðu Regnbogaprumpi. Kannast nokkur við þetta fyrirbæri og hvernig það viðgengst?
nei
Mér líst vel á að sérhæfa mig í málefnum Nepals. Ég man bara að fyrir örfáum árum tók krónprinsinn sig til og kálaði sinni nánustu fjölskyldu og þurfti frændi hans, sem var á klósettinu þegar atburðurinn átti sér stað, að taka við öllu klabbinu.
Það var vorið 2001 um það leiti sem Íslendingar héldu sjómannadaginn hátíðlegan það árið. Krónprinsinn er sagður hafa unnið verkið, vegna vanþókknunar foreldra hans á kvonfangi því er hann lagði hug til. Þegar hann lá milli heims og helju mátti búast við því, ef hann myndi ná sér að þjóðsöng landsins yrði breytt og gárungarnir með Standpínuna í broddi fylkingar U2, og Ísalandsvinirnir í Reiði gegn kerfinu, myndu sameina krafta sína og leggjast á eitt um að gera "Killing - in the name of - love" syngilegan á íþróttaviðburðum og við önnur hátíðleg tækifæri.
Krónprinsinn dó og því varð ekki skipt um þjóðsöng.
Nýjustu fréttir herma að uppreisnarmenn Maóistafélagsins í Nepal hafi látið af umsátri sínu um Khatmandu eftir að þeir komust að því að þetta væri ekki mannúðleg baráttuaðferð.
Annars er það nýjasta nýtt frá Sviss að ný könnun leiðir það í ljós að ferðamenn í Sviss almennt ekki með það á hreinu hvort þeir séu í Sviss. Flestir héldu að þeir væru í Austurríki.
Annars er það nýjasta nýtt frá Sviss að ný könnun leiðir það í ljós að ferðamenn í Sviss almennt ekki með það á hreinu hvort þeir séu í Sviss. Flestir héldu að þeir væru í Austurríki.
Sumir töldu sig og vera í Svíþjóð
Jóni Baldvini ætti ekki að verða það skotinn úr þeirri skuldini að frelsa Nepal.
Frelsum fólk undan frjálshyggjunni og tökum upp jöfnuð meðal manna.
Já, gerum endilega aftur stóru félagsfræðilegu tilraunina sem staðið hefur í Kína og Norður-Kóreu undanfarna áratugi og nýlokið er í austanverðri Evrópu. Þetta hlýtur að geta gengið hér að drepa niður frumkvæði og sjálfsbjargarviðleitni þegnanna og gera alla jafn vesæla. Að vísu verðum við að koma okkur upp leyniþjónustu og her en skítt með það, auk þess er Björn Bjarnason byrjaður á verkinu.
Er framtíð Nepal lokið?
Nokkuð Eftirtektarvert Prýðisgott Andlegt Landslag
Menn ákváðu að gleyma því tilað hægt sé að forða sér þangað til að fá frið ef eitthvað bjátar á. Hins vegar held ég að við verðum að ráða nokkra sjerpa til að hafa skipulag á því hverjir fá að fara og hvenær.