Hvurs lags flokkshollusta er þetta. Mér finnst fokið í flest skjól haldi menn enn tryggð við "sinn flokk" á meðan hann missir niður um sig buxurnar ítrekað. Nenna menn ekki að hugsa sjálfstætt?
Já, Sjálfstæðismenn hugsa alltaf sjálfstætt. Það felst í nafni flokks þeirra, ekki satt?
klórar sér í höfðinu yfir hversvegna Alveldi B Ewings sé ekki á listanum..
Heyrðu... ég kýs bara Samfylkinguna aftur sem og konan mín og dætur mínar 2. Það eru 4 atkvæði. Síðan þekki ég örugglega 100 manns sem kjósa Samfylkinguna... 100 atkvæði í viðbót. reynir að spilla teljurunum
Já, Sjálfstæðismenn hugsa alltaf sjálfstætt. Það felst í nafni flokks þeirra, ekki satt?
Hehe, þetta þótti mér fyndið.
Hér eru nýjustu tölur úr bagalútíukjördæmi.
Vinstri grænir = 9
Íhaldið = 5
Samfylkingin = 2
Kvennalistinn = 1
Frjálslyndir = 1
Framsókn = 6
Anarkistar = 2
Sérframboð Hórasar Haukdal = 4 (Biltingarráð hins Baggalútískaheimsveldis)
Henntifljettuflokkinn = 1
Leðurflokkin = 1
O-listinn = 2
Auðir og ógildir = 10
AHT. Könnunin heldur áfram.
Tsk. Þetta er meira bullið. Hvert mannsbarn veit að þessar kosningar á Íslandi eru bara upp á skraut, það er á hvers manns vörum að Baggalútía stjórnar landinu í raun.
En fyrst þið eruð að grínast þetta með kosningarnar, þá myndi ég ef ég hefði kosningarétt kjósa Vinstri-Græna.