Serða má ég sjálfsagt enn
svanna minna drauma
En sundlauganna sora menn
sína 'draga tauma'
Tauma draga dánumenn
daufir mjög í framan
Zorglúbbs grætur svanninn enn
síst er hennar gaman.
Gaman bæði og gæfu hér
nú gefi jólin
Skemmta kallinn skaltu þér
hvar skín ei sólin
Sólin skín á Zorglúbb þá,
sæmdarmanninn þann,
er lærir hann að leysa má
lostaskortsvandann.
Vanda skaltu vel þitt mál
vini eignast marga
Þráður fer í brand og bál
ef bræður tak'að garga
Lostaskortsvandann í denn
drengir góðir leystu
Losuðu þá marga menn
við mæðuþrungin eistu
Nú, nafni var á undan en er þetta ekki svindl? Baaaarbiiii!
Vandar um við vininn sinn
væna skáldið Nafni.
Zorglúbb kæri, kallinn minn,
kærleiksþel vort dafni.
Hmm, þetta er útúr kú, hvað nú?
Eistun góðu undir mér
eru' í fínu standi.
En stæði ég í bleytu ber
bísn mér þætti og vandi
Það er alþekkt hér að menn stytti orð og taki upp þráðinn þannig og því held ég að Nafni hafi átt síðasta orð...
Garga nú í gorinu
glæsilegir mávar
slefa yfir slorinu
sleikja nytjar sjávar
Sjávarfangið seiðir mann
Síldin, þorsk og humar
allt þetta ég elda kann
aftur næsta sumar
Sumar eru syndir hans
sætar, ....yndislegar.
Aðrar meika engan sans
...arfa heimskulegar.
Heimskuleg oft gerast glöp
gáfumanna
Kvæð'um brjóst og kvennasköp
kvæðið sanna
Sannarlega gaum ég gef
gáfum frómra manna
Helst þó mæn'á rímna ref
refistig'ans kanna
Kanna stendur upp á stól
stigmagnandi koma jól
Jólasveinar jóðla'á hól
Je minn ég rek upp stressgól
Stressgól óma um borg og bý
býður mér nú við því
Jólin nálgast enn á ný
neyðina skín í
Ívar hann er ærslatól
alltaf er að grínast
Hvorki er'ann fíbbl né fól
flumbri vill í týnast
Týnast geta tóbaksklútar
í tímahreti
Bestir eru Baggalútar
á breiðu neti
Neti fíknar flæktist í
fann ei leiðir út úr því.
Fíknin æ að senda og sí
á síðu þessa vísu á ný.
Nýjar drápur daglega
drengur innleggur
Lyga fleipur faglega
fimur á heggur