Holdið veikt og vitið skert
í vöku jafnt sem svefni
sæmd er kæst og sinnið hert
til satans nú ég stefni
Stefni ég á ströndina.
Stefnið er á bátnum.
Efnið gaf upp öndina.
Ennþá fjölgar látnum.
Stefni ég á störnu vit
stanga vel úr tönnunum
Glampar á mitt beitta er bit
bragð gott er af mönnunum
of seinn........
Látnum fyrir liggur
loforð um annan heim
Heimskur á það hyggur
helvítis í flame
fleiming-gei er faðir minn
ferðast um í dragi
blauðum piltum bossann sinn
býður uppá þaki
Þakinn fiðri fær hann skell
ferlegan á bossa.
Jafna má við miklahvell
munúð þeirra kossa.
Þakinn er ég ýmsum kaunum
ólykt leggur nú af mér.
Virðist mér sem mínum raunum
muni ekki linna hér.
Æji, of seinn!
Kossa þigg og kærleikshót,
komist ég til þín.
Vona ég þú vænleikssnót
væntir einnig mín.
Mín er ekki minnst á hót.
Meira að segja núna,
er í kulda og þýðumót
ylja alla lúna
Lúna tekur lundin mín
leggjast á mig pestir.
Hvelfist yfir hvirfil pín,
- hvar er Hléwagestir?
Hléwagestir horfinn er
hégómlegum sínum hent
Vonandi hann vellir hér
vísum inn og snilldar pent
Pent hann oftast párar hér
penni nokkuð góður.
Eykur gleði og gaman mér
Gestur hlés margfróður.
Fróður er Frakklands vín
fransa þekki marga
Rækta bæði svepp'og svín
svaka mikið garga
Gargandi syng ég um gleðileg jól
glaðlyndur hoppa af kæti
hringa mig niður og hopp'upp í ból
háma svo konfekts-sælgæti
Gargaðu ekki góða mín,
þótt gandur minn þig kitli,
því það mun verða væl og hrín
ef vaknar Steini litli.
Æji.... of seinn
Sælgæti er sómamatur
satt mig hefur ár og síð
einatt kylliféll ég flatur
fyrir því á jólatíð.
Jólatíð ég treysti á
Tonnið fæ af nammi
Arka verð í ætið þá
Óður hakkar kjammi
Kjamma læs'í kjúku
kjamsa henni á
Er ég af sinni sjúku
sundin dvel við blá
Kjammi fullur keti af
kartöflur og sósa
ísréttinn þó ei upp gaf
ilmur víns og rósa
of seinn
Bláberjaís og blóðug steik
berst inn milli vara
glæsileg við gómsins leik
góð er steikar para (veit ekki með beyginguna á pöru, en rímið blifar)
Parasetamólið myl
minnar vegna þynnku
Síðar eflaust varna vil
-Viagra með- linku
Linku karlinn kennir nú.
Hvernig má við bregða?
Kvartar Zorglúbbs kæra frú,
hver vill hana serða?