Ræman þessi voluð verst.
Vond, mjög vond.
Eitt er þó betr´ en best.
Bond, James Bond
Þegar andagiftin er orðin allsber
og andinn dvínar og dofnar og þverr
við sénever þömbum og segjum sem er
sum schluss mein herr.
Leikið ég hef í litlum sölum
á Lútur og gítara smá
Drykki hef svolgrað á skítugum svölum
Send me my Whiskey NOW!
Gælir hún við gandinn minn
ég gleðst og sperri stél.
Hvergi við þó komumst inn,
tað gongur ikki væl.
Mergsoginn um morgunn
mjög sólin skein
Birta beitt í forgrunn
"Björt mey og hrein"
Undir fótinn legg ég land,
mér leiðist heimastúss,
bíð hér upp við strætóstand
jönn az autobusz.
Nei, nú mótmæli ég allur! Það gengur ekki að breyta nafni þráða með þessum hætti. Orðið Leir er notað yfir leirburð, þ.e. illa kveðinn kveðskap. Orðið Þýskhendur nær mun betur að fanga stemminguna í þessum vísum. Og svo eru sumar þeirra alls enginn leir, heldur hin ágætasta braglist.
Blótar herfilega og rífur hár sitt ... dæsir svo mæðulega og lítur út um gluggann
Hvað er orðið hvað var gert?
Hvernig breyttist nafngift væn?
Þú sem gerðir þetta ert
an arrogant and horrid swine.
Haarde Geir er hálfur leir.
Hitt er saur og tað og slý.
Ef forlög leyfa að finnumst tveir.
From hell´s heart I stab at thee.
Þrusugott þarmaprump
þögnina sker.
Lokkar til sín Lafði Strump
„Love is in the air“.
Á kaffihúsi í Kaupinhafn
kættist mærin svöl
er hana spurði Heiðar Rafn:
vil du ha' en öl?
Grasið og gróðurinn nagar kind.
Græn verður fold þá er vorar.
Vem kan sigla forutan vind?
Vem kan rä utan ärar?
Vippi hér fram vísukorni
Vesæll sem ég er Smirslov
Engist um á hverju horni
"Its so easy to fall in love"
Graðir hanar góla
gargandi burtu flía
hænur vappa um hóla,
hæ! Jeduda Mía.
Súpum úr samovar kátir og glaðir
Skellum í góma
Babúskum bjóðum í heimsókn graðir
Вλаводка да доша
(Vegna "Tveggja turna tals" x-d og x-s fyrir síðustu kosningar)
Ef Samfylking og sjallagrey
sig setja upp á hásess.
Ég vitn´í bók og segi nei.
A plague on both your houses.
Einsamall um aftan ég gekk út að sjó.
Ipso facto.
Marbendill fékk þig þar mín kæra úlpa.
Mea culpa.