Hví er eigi hægt að hafa það þannig að þeir þræðir sem síðazt var svarað fara upp á topp umræðuefnalistanna, þ.e. að sé þræði svarað flyzt hann upp á topp?
Ég neita að svara þessu.
Það er skilgreiningaratriði hvort keisarinn var með því að neita að svara þessu að svara þessu eða eigi að svara þessu með því að svara því til að hann svaraði þessu eigi þar eð unnt er að líta bæði svo á að hér sé um að ræða svar keisarans við því er um var spurt, og væri hann þá kominn í mótsögn við sjálfan sig, og að um sé að ræða sjálfstæða fullyrðingu er eigi er svar við efstu fyrirspurninni í þræði þessum heldur gefur einungis til kynna hvort henni verði svarað af keisaranum eður ei.
Auðvitað var þetta ekki svar hjá mér! Þetta var innlegg.
Svar hefði gefið Fergesji skýringu á því afhverju nýsvaraðir þræðir fara ekki upp á topp.
Ég get svarið það.