krunkar svangur krummi hátt
kaldur ranglar þreyttur
blakk því langar barn í smátt
birtist angi feittur
fuglinn stangar flikkið brátt
físnastrangur beittur
sækir þangað holdið hrátt
hækkar gangur veittur
Krunkar svangur krummi hátt
kaldur ranglar bleikur
Konan hans er kannski sátt
við kaldar rifjasteikur?