Væri eigi við hæfi að breyta nafni umræðuflokksins "Nýall, stjarnvísi og kóbalt" í "Nýall, stjarnvísi, kóbalt og heimsyfirráð" (eða e.t.v. "Nýall, stjarnvísi, kóbalt, gjöreyðingarvopn og heimsyfirráð") í ljósi þess hvernig umræður þar hafa þróast ?
Jú, við skulum endilega láta vitleysingana sem skrifa á gestasvæðið sjá um að ákveða hvað verður fjallað um í hverjum flokki, frekar en að þeir reyni að fylgja þeim viðmiðum sem sett eru af ritstjórn.
Vil ég taka undir orð spesa, þótt svo að ég hafi ekki hugmynd um hvað hann var að tala um. Ekki má gleyma því að drengurinn sá á að fermast um hádegisbil á morgun og þætti mér leiðinlegt að sjá hann ganga til altaris án þess að hafa sagt það sem hann sagði. Hvað sem það nú var.
Merkilegt. Yfirleitt reyni ég að varast að tjá mig um það sem ég hefi ekki hugmynd um. Áhugavert að vita að börn eins og þér skuli enn vera til.
Hafðu þökk fyrir fagurleg ummæli, ég treysti því að þú haldir áfram á þeirri braut er þú gengur einmitt núna. Hún liggur til auðlegðar og frama