— GESTAPÓ —
Nýja myndin hans Skabba
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Urmull_Ergis 10/12/03 02:06

-Fær Skabbi sérstakan harðandisk innan Baggalúts í tilefni áfangans, eða þykir ástæða til þess að koma honum fyrir á sérstökum server?

-Fólk er fífl.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 10/12/03 09:39

dordingull mælti:

Er engin að átta sig á því að Skabbi er að halda upp á 1000ára(innljeggja) afmæli.

Skabbi minn: Til hamingju og drekktu eins og þú villt.

Jú, er að halda upp á þúsöldina, ég strengdi þess þó heit þegar ég fór yfir þúsund að fara að draga úr innlögnum á þetta spjallborð, það virðist hafa haft öfug áhrif og hef ég sjaldan skrifað meira...maður ætti kannski að skella sér í afvötnun...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 10/12/03 13:39

hlewagastiR, ertu að saka mig um áfengisbindindi!?!? Af öllum þínum fúkyrðaflaumi og safni hef ég aldrei orðið vitni að öðrum eins dónalegheitum.
Vei þér, hlewagastiR, vei þér

‹hoppar af reiði›

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 11/12/03 12:09

Af hverju í ósköpunum þurfið þið svo oft að tengja víndrykkju við eitthvað slæmt. Þetta er ekki einu sinni ofdrykkja, þetta er alveg passlegt magn. Hver og einn lútsmaður er fullfær um að vera brotaþoli, afbrotamaður, ákærandi, dómari og böðull í sínu eigin drykkjumáli. Engin utanaðkomandi aðstoð er nauðsynleg né eftirsótt. Mæli ég svo fyrir að hver og einn lyfti svo glasi og skáli við mig fyrir heilsu og heillindum allra lúta.

‹Lyftir freyðivín-glasi sínu og brosir eins og nunna á hnakklausu hjóli›

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 12/12/03 13:38

takk takk, en það sést glögglega að ég er undir áhrifum á myndinni!

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
feministi 12/12/03 17:03

hlewagastiR mælti:

Mikill Hákon mælti:

hlewagastiR, ertu að saka mig um áfengisbindindi!?!? Af öllum þínum fúkyrðaflaumi og safni hef ég aldrei orðið vitni að öðrum eins dónalegheitum.
Vei þér, hlewagastiR, vei þér

‹hoppar af reiði›

Æ, fyrirgefðu, góði maður. Svona nokkuð gerist þegar maður tekur feil á notandanum og notandamyndinni. Skelfing get ég verið vitlaus. ‹þylur 12 Maríubænir í yfirbótarskyni›

Mér sýnist þetta sanna að öl er annar maður

LOKAÐ
        1, 2
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: