Um „Furðulegt háttarlag hunds um nótt“
hefur ritað Haddon, Mark.
Lesir þú bókina langar þig fljótt
Lubba þínum að gefa spark.
Úrvinda ég hengi haus,
helst nú vildi sofa.
Svefninn hann linar og líknar
ljúft er að hvíla sinn rass
Finn ég til framandi fíknar
í felum ég reyki mitt hass.
Hefur Hlewa grunaðan um að reyna að stýra rímorðum
Suður ég hélt í sælureit
í sumarbústaðinn
Dáinn er í Danaveldi
Daninn, Ove Sprogøe
Hlewi bjóra honum seldi;
hundrað tuttugu og sjö.
Reyndar konur ráða við
raðfullnægingu.
Reyndar konur ráða við
raðfullnægingu.
Þykir yndi unaðskvið
eins og friðþægingu
Læt ég einsog limaber
lævís hunda rakki
Grandvar karl og góður
gægðist inn um dyr
“Er hér einhver fróður?”
oftast karlinn spyr.
Það er af sem áður var
er ég kunni að ríma.
Grandvar karl og góður
gægðist inn um dyr
Sækir gerlagróður
giska nú er kyr
Haltu kjafti hálfviti
hundskastu nú burtu
það má náttúrulega ekki lesa neitt´ íþennanbotn annað en að ég er fulllur
Detta úr lofti dropar stórir
dýrlegt er í sturtunni
Uppi á bakka fiskar fjórir,
fer að landa murtunni.
Afi minn fór út til London
með Icelandair á tilboði.
Afi minn fór út til London
með Icelandair á tilboði.
Keypti hann sér krukku' af kondom
karlinn hélt sér steðj' að voði.
Ólukkans er að þér spáð
ekki verður skaði
Venni gamli er voða hress
velur rímorð dauðans
Enda segir bráðum bless
bróðir morgunrauðans.
Munið það á morgun, sveinar,
að messað er í kirkjunni.
Nóttin hún er ekki ung
austið fer að roðna
Er ég viss með aulapung
alveg niður koðna.
Rafmagnið er rausnargjöf
Riðstraumur og kerti
Rafmagnið er rausnargjöf
Riðstraumur og kerti
Enda mun ég oní gröf
ólukkuna snerti
Hversu mikið þaff ég þraut
að þruma yfir lengi
Ákavíti um æðar rennur
ekkert mælist blóð
hóran fóta gerði glennur
gaurnum ekki stóð
Hér er allt í tómu tjóni eftir nóttina, Úff ......andskoti hafiði verið fullir og kvenmannslausir...........heldur áfram að tauta
Venni vinur:
Það er af sem áður var
er ég kunni að ríma.
Ég brenni inná næsta bar
bögur þar vill slíma
Kvennmannslaus í kvæðaleik
kvað á Baggalúti
Ég er ósáttur, Venni breytti sinni vísu eftir á... því er þráðurinn gildur og Nafni að vaða í villu...
Ákvavíti um æðar rennur
ekkert mælist blóð
Svindlað hefur Vinur Vennur
Víst um kvæða slóð
Þráður er í þráðarspreng
þraut að púsla saman
Þráður er í þráðarspreng
þraut að púsla saman
Svona svanna, slíkum dreng
að svindla á er gaman.
Tækni bregst og tölvur falla,
tækjaveröld endar.
Tækni bregst og tölvur falla,
tækjaveröld endar.
Drengir ungir drullumalla
dett'út sjónvarpssendar
Tölva hrynur, týnast gögn
tapast heimur allur
Hvurslags.........ekki gat ég vitað að Venni Óvinur væri svindlari. Hann sem sagt var of seinn en breytti eftirá þannig að það leit út fyrir að Skabbi hefði verið of seinn. Raunin var þá ekki sú að kvæðavinir næturinnar hafi verið pjonku fullir og örlítil óreiða myndast sem öll er slétt og feld "daginn eftir".
Tölva hrynur, týnast gögn
tapast heimur allur
Völva rymur "ragnarögn"
rusl er talnahnallur
Kvennmannslaus í kvæðaleik
kvað á Baggalúti
Kvennmannslaus í kvæðaleik
kvað á Baggalúti
Með kláravín í kossasleik
á köldum flöskustúti.
Í Hallgrímskirkju er heljarinnar gaman,
herra biskup gefur drengi saman.