Þið eruð svo mikil börn.
Ég ætti að spyrja þig sömu spurningar.
Ég hélt að þetta höfðaði til þín? Varst þú í Kópavogi fyrir stuttu?
Ég veit ekki hvernig þú fékkst það út að svona lagað höfðaði til mín en nei, ég var ekki í Kópavogi fyrir stuttu, hversu mikið sem það tengist umræðuefninu.
Mikið er ég feginn að allt er komið í samt lag. Það er greinilegt að Frelli er farinn inn á starfssvið Glúms vinar míns. Það veit eigi á gott.
Humm, síðastur á ráðherralistanum? Hvurfjandinn!
Hví er ráðherra- og embættismannalistinn á tvemur stöðum á þráðasafninu?
Þetta er prufuinnlegg til að sannreyna ákveðinn grun hjá oss...
Hví er ráðherra- og embættismannalistinn á tvemur stöðum á þráðasafninu?
Honum var rænt af undirheimalýðnum í misheppnaðri byltingartilraun og skilin eftir tilvísun hér í Baggalútíu yfir í undirheimana. En svo tókst að endurheimta þráðinn hingað og umrædd tilvísun vísar þá á þennan þráð. Það er spurning hvað gerðist væri 'neðri þræðinum ('tilvísuninni') eytt, líklega væri það í lagi en gæti þó leitt til þess að listinn hyrfi með öllu.
Kæri Vladimír. Væri þér sama að uppfæra embættismannalistann. Undir konungdæmið hefur bæst við nýtt embætti riddara og er það Behind Blue Eyes sem heldur því. Hafðu hugfast að brátt mun hann breyta um nafn, í Heiðglyrnir hinn hugdjarfi þannig að þú þarft að fylgjast með hvenær Enter nennir að breyta því.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ráðherra- og embættismannalistinn hefur verið uppfærður í samræmi við undanfarandi beiðni.
En hvað þá um herra Bebley? Mér fannst það nafn mjög við hæfi, þessi hugdetta Hákonar hefði hitt beint í mark. En jæja, riddarar verða víst að hafa nöfn sem einhver getur borið virðingu fyrir.
Hér með fer ég þess á leit að veraða skipaður yfirmaður leyniþjónustu Baggalútíu og sérlegur útsendari.
Ég hefi í fórum mínur afburðar góð meðmæli sem eru svo leynileg að ég verð að drepa hvern þann sem les þau. Einnig gæti ég bent á þrjá mjög svo áræðanlega herramenn mér til meðmæla, en þar sem hvílík leynd ríkir yfir meðmælum mínum var mér nauðugur kostur einn að koma þeim fyrir kattar nef.
Með vinsemd og virðingu
Við höfum þegar yfirmann leyniþjónustu/öryggisþjónustu, hún heitir ÖLÍS og er Sverfill Bergmann forstjóri þar.
Þú lítur launmorðingjalega út. Hugsanlega er laust fyrir þig embætti sérlegs launmorðingja ÖLÍS (sem heyrir undir Varnamálaráðuneytið, nota bene.)
Við höfum þegar yfirmann leyniþjónustu/öryggisþjónustu, hún heitir ÖLÍS og er Sverfill Bergmann forstjóri þar.
Þú lítur launmorðingjalega út. Hugsanlega er laust fyrir þig embætti sérlegs launmorðingja ÖLÍS (sem heyrir undir Varnamálaráðuneytið, nota bene.)
Ég biðst velvirðingar á yfirsjón minni. Og ég sem taldi mig fara vel í gegnum pappísvinnuna áður en ég sótti um. Það sannar bara að skrifborðavinna er ekki mitt fag.
Mér yrði mikill heiður sýndur með embætti sérlegst launmorðinga. Enda ætti útivinna betur við mig.
Breyti ég því umsókn minni hér með í þá veru.
Vér erum samþykkir hinni nýju umsókn albins, þó með formlegum fyrirvara um samþykki varnarmálaráðherra.
Jafnframt tilkynnist hér með að nafn riddarans nýskipaða hefur verið uppfært í ráðherra- og embættismannalistanum.
Er enginn möguleiki að fá sérlegan einkabílstjóra? Mér var að áskotnast Mercedes Benz 600 Pullman Limousine sem var áður í eigu Idi Amin og vantar einhvern sem getur ekið mér um í bílnum.