Hvernig er þetta með pistla, dagbækur og gagnrýni. Er ekki hægt að setja þar inn myndir? Eða er ég að misskilja eitthvað? Tæknibjálfinn sem ég er.
Ég var nefninlega að skrifa gagnrýni um skegg Charles Bronson og það er nú hálf ómögulegt að geta ekki sett þar inn myndir til að sýna dýrðina.
Það er nú ekkert hægt að deila um svo fullkomið skegg. Fátt í sköpunarverkinu hefur verið eins fullkomið í einfaldleik sínum og skeggið sem dvaldi á Charles Bronson.
Skeggið var ekki heima síðast þegar ég spjallaði við Kalla
Ehemm, afsakið hvað ég lít seint hér við - en ég hef verið svo niðursokkinn í athuganir mínar á flugvallarmórum að ég má varla vera að neinu öðru.
Ég skal athuga þetta við tækifæri - það verður líklega ekki alveg á næstu dögum - en þetta er komið á LISTANN.
Æ það liggur svosum ekkert á héðan í frá. Gagnrýni mín á skegg Bronsonar hefur þurft að víkja af forsíðu fyrir einnar setningar dagbókarfærslum. Verður vart mikið lesin upp úr þessu.
Mín mynd lýsir mér nokkuð vel mér bitur,Sól-fælinn,antisósial,8-eitthvað og síðan en ekki síðast .. .. ..... Rauður ?
gefum hugarfluginu byr undir báða vængi
Leyfum fólki að mynda sér sjálfstæðar hugmyndir um útlit umfjöllunarefna pistla og dagbóka færslna