Já ákveðinn skíthæll (man nú ekki nafnið á honum) gerðist svo frakkur síðastliðin jól að stela Baggalúti, já eins og fólk ætti að muna dugði honum ekki að stela bara jólunum heldur stal hann af okkur sjálfum Baggalúti. Eitt gott þótti mér þó leiða af manninum og var það jólalagið sem hann skildi eftir sig.
Óska ég því eftir því við hina háæruverðugu stjórn Baggalúts að hún láti af fordómum við vitleysinginn og bæti laginu inn á síðuna. Eða í versta falli gefi okkur á spjallinu upp slóð að laginu.
Takk fyrir mig
Sigur!
Uss nei nei. Ég man nú ekki heldur hvað hann hét, en hann hét allaveganna miklu voldugra og flottara nafni en Hafþór Hübner. Hann var líka að minnstakosti höfðinu hærri en þú og talandi um höfuð, með miklu meira hár. Og sterkur á við þrjú naut.
Hafþór minn, hvernig væri þá að bjóða manni upp á slóð að þessu rosalega lagi, lagi sem heimsbyggðin mun minnast sem þíns stærsta afreks! Í þágu mannkyns það er að segja!
Já Hafþór gefðu okkur tengil á lagið þitt!
Ég á annars lagið til hérna á lager og ef Baggalýtingar taka ekki við sér þá gæti ég dreift því.
Það er nú kannski engum greiði gerður með því að dreifa þessu glamri hans Haffa, allra síst honum sjálfum. Ætli þetta sé hans eigin rödd sem sker svona í eyrun?
þess má geta að þetta er nokkuð léleg mynd af mér.. ég þyrfti kannski að finna betri
Það var þér líkt Hafþór að skálka í skjóli heiðvirðra einstaklinga. Sýndu okkur nú þitt rétta andlit.