Æi - er í skelfilegum vanda - langaði sko að vera Ted Kennedy - en týndi þá Krumpu -myndinni, sjálfri Úrsúlu hinni brjóstgóðu - hvernig næ ég í hana aftur ? Líður vægast sagt mjög illa yfir þessu og sjálfsmatið er í rúst. Geturðu hjálpað mér ?
Þú getur bara sjálfri þér um kennt að vera svona hégómagjörn!
Hégómleg meinarðu ? Og síðan hvenær er það hégómi að fá sér mynd af feitum kennedía ?
Stóran góm þá bara. Hégómi þinn er mikill að vilja leggjast niður með pöpulinum og taka á þig ásjónu almúgamanns, við viljum þig ekki á niður á okkar stig! Svo þolirðu heldur ekki við svona lengi í sollinum og vilt flýja aftur í mjúkan barm fallinnar stjörnu.
Skilur ekki svona flókið mál og heldur áfram að sverfa neglurnar og hagræða brjóstunum...
Æi - er pússí galore ekki bara soldið sæt - ??
Er greinilega í tilvistarkreppu - kannski spurning að sjá viðbrögðin við þessari ? En elsku, besti, ef ég verð viðþolslaus af söknuði...áttu þá úrsúlu handa mér aftur ? Vil hins vegar ekki sjá Tedda - hann vakti litla lukku hjá karlpeningnum (reyndar var þetta Fitzgerald sjálfur - en bara orðinn feitur og ljótur á þessari mynd). Hvor finnst þér annars sætari ? Pussí eða Honní ?
Pússí er næs. Bévítans kuðungurinn var alltaf dálítið törnoff hjá Hönní.
Jamm, held ég haldi mig bara við Pússí að sinni. Hún er líka sterkari kona og ögn gáfulegri....heldur áfram að hagræða brjóstaskorunni...