Upp úr hádegi í dag sáum vér brot úr Silfri Egils þar sem rætt var við Jón Baldvin Hannibalsson. Vakti þar einkum athygli vora fagurblár drykkur er Jón Baldvin saup á. Veltum vér nú fyrir oss hvort sjónvarpsstöðvarnar séu e.t.v. farnar að kóbaltblanda drykki gesta sinna eða var lýsingin kannski bara svona sérkennileg þarna ?
Var þetta kannski blár orkudrykkur? Er Jón eitthvað farinn að slappast?
Eitt er víst...nei reyndar ekki.
Var þetta ekki bara kokteill? Karlinn hefur löngum þótt blautur...
Missti af þessu, leit hann út fyrir að vera edrú?
Bláedrú sýndist oss og vorum vér eigi að gefa áfengisdrykkju í skyn heldur hugsanlega kóbaltneyslu (sem er hið besta mál).
En er rétt að Eiríkur nokkur Stefánsson fyrrum verkalýðsfrömuður austur á fjörðum hafi verið í silfrinu?
Hvernig stóð hann sig ef satt er?
Ég bara missti alveg af þessu. Tímasetningin er náttúrulega bara vangefin. Hver er að horfa á pólitískar umræður á hádegi á sunnudegi? Fólk er á skíðum, í bíltúr, í útreiðartúr, í sundlaugunum eða eitthvað þess háttar. Þetta á að sýna eftir kvöldfréttinar. Neitar að viðurkenna það sem allir sjá þó strax að það var þynnka sem hamlaði áhorfinu síðasta sunnudag

Persónulega þá var ég í skíðaferð í Aspen þennan tiltekna sunnudag. OG þunnur líka, en það er aukaatriði.
Starir þegjandi út í loftið
Hver veit. Nú hef ég löngum brúkað COOH-neyslu með JBH, en aldrei séð hann neyta blás drykkjar. Þykir mér því líklegra að "the royal you" eigir myndlampa sem á eftir að afhlaða, degaussa

Þetta var nú líka blátt í gamla Finluxinum mínum