Rótt var í Reykjavík forðum
ryskingar fátíðar þóttu
seinna varð megn hér af morðum
misklíðir á okkur sóttu
Sóttu ég tek er sálmarnir rjúka
syfjar mig mjög og ruglið svo hreyti
Tek ég svo gleði er stuðlana strjúka
stafina höfuðs og rímið hér þeyti
Þeytist ég fram og þar
er ég gerði það góðverk
að gera Kaffi Blút að mari
að ég gerði þó ekki sóðaverk.
Sóðaverkin vann ég oft.
Vetrarlanga daga.
Einatt hafði opinn hvoft.
Einnig tóman maga.
maga mínum ligg ég á
mala hér alla daga.
ég var þarna einn og lá
er móðir var að saga.
sögum niður allan skóg
svo að pappír er til að fá
og nú hafa nágrannar fengið nóg
en nöldra þeir, drep ég þá
þá er stundinn runninn upp
allir þurf'að fara
einn þeirra vildi ei standa upp
hann sagði af því bara!
Baraflokkur bestur var,
barin rafmagnstromma
Röddu þandi kúl og klar
kærastinn hans Tomma
Til skýringar fyrir krakkaormana hér á síðunni var Baraflokkurinn Akureysk nýbylgjurokksveit í upphafi níunda áratugarins, hverrar söngvari átti í ástarsambandi við Tomma Tomm í Stuðmönnum
Tomma forðum tóku Who
með tilþrifunum góðum,
Heit var tónasúpan sú
soðin upp með ljóðum.
Ljóðum hérna læði að
lofað vera „ góður “
Yrkj'um bara þitt og það
þráðar jafna róður
Róður þungur reynist það
reisn í ljóði að halda
Sveinar ykj'um svitabað
og svínasúpu kalda
Kalda súpu fengu sér.
svona seint á kvöldin.
ég kláraðana á undan þér
þú ert mesti nördinn.
Ármann, drekaflygill, Ljón vitringanna og aðrir leirhnoðarar (það á líka við um þig bauv): Andskotist þið nú í það minnsta til að nota stuðla og höfuðstafi hér innandyra.
Þetta er enginn bévítans atómþráður!!!
Hundskist til að læra grunnatriði bragfræðinnar ellegar látið vinnandi skáld í friði.
Eftir þau frómu orð stórskáldsins Enters, stekk ég yfir Drekaflygil fer heljarstökk afturábak yfir atómið
Kaldar fá þeir kveðjurnar
er kunna ei að stuðla
hrynja undan hreðjarnar
hrogna málið bruðla
Heyr, heyr! Þetta á við innlegg Enters.
Bruðla ég á báðar hendur,
svo buddan tæmist óðum.
Áður en varir orðinn kenndur,
að atast í ungum fljóðum.
Æ, æ, alltof seinn en ég sé að Haraldur hefur tekið upp þráðinn þar sem Skabbi hætti.
Bruðla ég í bakaðar
baunirnar frá ORA.
Rennilegar, rakaðar
rauðum liggja í sora.
Í sora jafnan sælu finn
sulla allan daginn
drekk ég jafnan drykkinn minn
djöfull belgist maginn
á soradrulludaufum brag
dauðleið hef ég fengið
ef hingað hökta fleirí dag
hýðið þá - og flengið!
nújæja
maginn þolir varla við
vitin eru fyllt
skít er hlaðið skáldasvið
- skelfing er mér illt