— GESTAPÓ —
Kveðist Á
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 446, 447, 448 ... 455, 456, 457  
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 23/4/21 15:34

Hunzkaðist ég heim til mín,
hunzaður af öllum.
Nú mér sjálfum veiti vín;
vorið komið, sólin skín.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 12/6/21 22:39

Skín hún ei þótt sumar sé
sól sem vermir landið.
í kyndingu nú fer allt fé
og frýs úr manni hlandið.

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 18/6/21 13:11

Hland komst fyrir hjarta mitt,
og harmur þá fram brauzt,
er Grágrímur fjarlægði framlag sitt
fyrirvaralaust.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 15/8/21 14:16

Fyrirvaralaust vort land
lokast hér nú getur.
Eldgos pestin eitthvað bland
eða bara vetur.

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 25/8/21 16:29

Vetur kemur vex þá þor
vísnagerðamenna.
Og þeir sem latir voru í vor
vísur yrkja nenna.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 28/8/21 07:39

Nennan farin núna ég
nenni þó að sofa.
Nennan virðist vera treg
svo verkum engum lofa.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 5/12/21 18:49

Lofar engu latur gaur,
lætur tímann renna.
Sér að vinna inn einhvern aur,
ekki virðist nenna.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 6/1/22 14:53

Nenni ekki að norpa hér.
Napra finn ég strauma.
Þegar kem ég fólkið fer.
Forðast slápinn auma.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/2/22 15:23

Auma drykki enga vil
enda sjást ei líti.
Ég borða kæst og súrsuð svil
og sötra Ákavíti.

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 11/2/22 16:47

Ákavítið ákaft sötra
ákveðnir og hressir menn.
Ósköp skrítið er að lötra
á eftir þeim með ivín brenn-.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/2/22 16:49

Brennur á mér ýmislegt
sem ekki má hér flæða
sumt er hulið, sumt er þekkt
sumt má alldrei ræða.

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 14/2/22 09:33

Ræðan sterka ræsir lýðinn,
reiði vill hún magna.
Eftir löllum alltaf hlýðin
ómennum að fagna.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 7/3/22 10:59

Fagnaði ég Jóns Kára kvæðum,
sem komu fram í snildar bók hans Þokum.
Aldrei mun ég ná hennar hæðum,
þó hátt ég fljúgi í minum absúr rokum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 8/3/22 11:09

Rokum fagna og rigningum
sem rífa burtu klakann.
Ég senn þá hætti signingum
og set þá niður hakann.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 16/3/22 10:24

Hakakrossinn kominn aftur
Kænugarður berst þó enn.
Atomveldum eykst nú kraftur
endalokin koma senn.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 16/3/22 12:27

Sennilega sinnast þeim er saman vinna
ef þeir varla nokkru nenna
og ná svo hinum um að kenna.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 22/3/22 10:45

Kennt var mér að fela fé.
þá fræðslu hef ég bezta þegið.
Þó illa fengið oft það sé
alltaf vel ég hef það þvegið.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 22/3/22 11:05

Þvegið hef ég þurrmatinn
og þurrkað mína drykki.
Af því varð ég, óvitinn,
eins og refur Mikki.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
        1, 2, 3 ... 446, 447, 448 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: