— GESTAPÓ —
Vísa dagsins
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... , 35, 36, 37  
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 4/9/19 15:12

Vertu kæri velkominn!
Varaforseti Pence ég dái þig,
Vera muntu vinur minn
því verð þú bæði heiminn og mig.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 26/1/20 21:00

Afmæli á Bjarni Ben.
Blessun Íslands hann ég tel
Engeyinga góðu gen
gefist hafa okkur vel.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 14/3/20 18:37

Hræða varla hingað slæðist;
heldur ös en deyfð ég veldi.
Í næði ekki gullið græðist.
Hver geldur oss nú laun að kveldi?

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 29/3/20 21:44

Systir mín í sóttkví
syngdu og kveddu af því
ég ætla að ljá þér ljóðabækur
að líta í.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 6/4/20 19:02

Háar blokkir vindinn veiða
velta honum mér í fang.
Kraftar hans mig niður neyða.
Nú ég skríð um malbiks vang.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 22/6/20 15:18

Gúndi hann er góður kall.
Gott er vininn hinn snjalla að kjósa.
Átti við hann ágætt spjall
um illan Soros, þann djöfuls fósa.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 19/11/20 17:17

Klósettvinir kunnugt gera:
Kúk og skeini og vatn og hland
aðeins látum lagnir bera,
en látum rusl ei þar í bland.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 18/12/20 13:40

Hún fékk bók, en hann fékk nál og tvinna.
Heldur betur gjöfin sú var þörf.
Hann ætlaði við seglasaum að vinna.
Systirin hún stefndi á bókhaldsstörf.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 22/1/21 18:59

Nú er Trump minn farinn frá;
forsetinn sem ég dái mest.
Amiríka vill hann aftur fá.
Af öllum reyndist hann þar bezt.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 22/1/21 21:03

Fimmtungur af okkar öld
orðin núna liðin
Dónaldinn sem var við völd
Viðraði hér friðinn.

Friður var um fjarlæg lönd
En fárið kom og veikin.
Nú er Dónald orðin önd
Og endurtekur leikinn.

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 15/9/21 16:44

Gúnda minn, þann góða mann,
get ég ekki valið,
því Simma vin er alþjóð ann
mitt umboð hef ég falið.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 19/11/21 16:47

Nú klósetthátíð haldin er.
Ég hef mín klósett þvegið.
Þá bak og kviður kalla fer
þið koma til mín megið.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 25/11/21 21:00

Á þessum degi þakkargjörð
þeir fá er stóðu dyggan vörð
um okkar land og Íslands mið:
Hið Amiríska Varnarlið

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 25/11/21 21:04

Það kenndi oss svo ótal margt.
það upp að telja get ég vart.
Það kynbætti hér klakaþjóð
og kynnti blús og rokksins móð.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 25/11/21 22:12

Kalkún nú að Kanans sið
kát með öli étum við,
og milli bita blessum hátt
bandaríska hersins mátt.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 17/2/22 18:27

Framtíð kemur köld og dul.
Kvótans hækkar sífellt virði
En alltaf verður Guggan gul
og gerir út frá Ísafirði.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 14/5/22 18:43

Kjósa mun ég Miðflokkinn
magnað Sigmunds vitra lið.
Klárt er það og kjörþokkinn
kom þeim nú á sigurskrið.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bakaradrengur 9/7/22 10:46

Vita máttu að vitið er
vitrum manni akkur hér.
Vitanlega vit ég ber,
hér vitamálastjóri fer.

Hver hefur svo sem ekki ruglast á teskeið og kílói?
        1, 2, 3 ... , 35, 36, 37  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: