Dýrari atkvæðin eru öll fölsuð af óvinum ríkisins og teljast því ógild. Sigurvegarast allan daginn á enda
Vjer erum yfirsigurvegari hjer burtsjeð frá einhverjum atkvæðum sem óvinir ríkisins kunna að hafa falsað.
Yfirsigurvegaratitillinn er undirróðursbragð óvina ríkisins.
Þú hefur fallið í gildru og ert nú óafvitandi málaliði óvina ríkisins.
Ég geri nú þennan titil upptækan og tek að mér að bera sigurvegaratitilinn þar til málin eru farin að skýrast og óvinirnir á flótta reknir.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég get fullvissað þig um það Billi að forsetinn/aðstoðaryfirsigurvegarinn er ekki handbendi óvina ríkisins.
Á þeim nótum tel ég rétt að taka fram að það er ÉG sem er yfir sigurvegari!
Ég tiltók að hann væri það óafvitandi, og þetta innlegg þitt er næstum því bein játning á því að þú sért fulltrúi og stjórnarmaður óvina ríkisins.
Það tilkynnist því hér með opinberlega að allir þínir titlar, í fortíð, nútíð og framtíð dæmast dauðir og ómerkir, og hver sá sem les innlegg þín í þá veru dæmast vera meðsekir óvinir ríkisins.
Situr einn að öllum titlum eins og Jóakim Aðalönd í peningatanki sínum
Hvaða titlar? Hvæsi er búinn að vera að tapa í þessum leik í 12 ár...
Það tilkynnist hjer með opinberlega að Hvæsa er eigi að finna á listanum ógurlega yfir óvini ríkisins. Samt er hann í mesta lagi bara aðstoðarundirsigurvegari því það erum vjer sem erum yfirsigurvegari hjer Ljómar upp.
Það er svona að láta óvin ríkisins halda utan um listann um óvini ríkisins.
Tekur einnig alla titla Vlad til súgs
Hvaða titlar? Hvæsi er búinn að vera að tapa í þessum leik í 12 ár...
Fokk. 12 ár er langur tími. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Iss, 12 ár eru örlítill dropi í tímans hafi.
Ég tífalda þennan tíma auðveldlega. Spennir upp keppnisskapið
Og vjer þúsundföldum þennan tíma Hefur leit að tímavjelinni.
Klórar sér í höfðinu
Já en - ÉG er með sigurvegaraskikkjuna!
‹Fer í startrek búninginn sinn›
Megi massi sinnum hröðun vera með ykkur aðstoðarsigurvegarar
Iss, ég er með Svarthöfðaskykkjuna. Hún trompar allar aðrar skykkjur.
Tekur kraftinn til súg
Réttir Offara fagurrauðan leikfangabíl og leiðir hann út
Lokar hurðinni á eftir Offara, sprittar hendurnar og plantar sér í yfirsigurvegarahásætið sem er staðsett í risastóru yfirsigurvegrahásætisbyggingunni.
Sigrar
Nei! Það erum vjer sem erum yfirsigurvegari hjer.
Fer í miklu stærri yfirsigurvegaraskikkju en áður hefur sjest og kemur sjer fyrir í miklu stærra yfirsigurvegarahásæti í miklu stærri yfirsigurvegarahásætisbyggingu en áður hefur sjest