Verður það þá með litlu hái?
Þá verður nafn vort loksins örugglega löglegt Ljómar upp. Af einhverjum ástæðum grunar oss nefnilega að mannanafnanefnd hefði sitthvað við nafnið að athuga Klórar sjer í höfðinu.
Ég ætla bara að umraða stöfunum í nafni mínu en á erfitt með að velja:
- heilagt swaR.
- helgasti waR.
- gestahwaliR.
- hwati algeRs.
- swaRta helgi.
- siw hataR elg.
- salta hweRgi.
Ég legg til helga swaRti að þú skrifir það aldrei eins tvisvar í röð, fáir í raun að heita þeim stöfum sem þú hafir valið þér en fáir að raða þeim eins og þér sýnist hverju sinni. Það er eina leiðin.
Salta hvergi og Gestahvalir finnst mér best.
Grýta;
Gýtar
Týgra
... finn ekki fleir.
Ýr gat.
Þetta má annars vegar túlka sem svo að Ýri hafi tekist eitthvað en hinsvegar sem niðrandi viðurnefni.
Flott!
Svo er atgýr sem má vera að koma sér í gírinn fyrir atið, koma sér í atgýr
Ég ætla að breyta nafninu mínu í Verndum Umturna
Vér óskum Sigríði heilla. Eða hellum í Sigríði. Er ekki örugglega kominn laugardagur?
Jú, mörgum sinnum.
Það ber svo við að mannanafnanefndarnafnamannanefndarnafnanefndarnefnd Baggalútíu hefur hér með sagt af sér.