Sveittur er og svangur
syfjaður og lúinn..
þrammið er gæsagangur
gamall ogtalsvert fúinn.
,
Fúnar lappir fituhlunksins
fótspor djúp í leirinn marka.
Eins mun ferill skituskunksins
skýrt sjást fái hann að sparka.
Sparka fast og langa lengi
lokað maarkið er.
Fyrir unga dáðar drengi,
Dabbi forðar sér.
Sér hinn vitri Bjarni Ben
blikur á lofti efnahagsins.
Þá verður anzans ekkisen
ólag á rekstri þjóðfélagsins.
Þjóðfélagsis þrautamein,
þung eru spðrin..
þegar ganga einn og ein
einbúar á vorin..
Vorið hjá mér vekur trú
að vetur muni hopa.
En kemur alltaf aftur jú
aldrei henda lopa.
Lopa peisu prjónaði
Pállína um daginn,
'Á sama tóninn tónaði
Tóta allan braginn.
Bragi orti um ekki neitt
og ýmislegt um margskonar
Heldurðu að mér verði veitt
verðlaun Tómasar Guðmundssonar?
Guðmunds synir ,taldir tveir,
Tmmmi og Gvendur..
Góðir smiðir þykja þeir
þar um lendur..
------------------------------
Lendur hugans lágu saman
ef landinn draup.
Við bruggkútinn var gleði og gaman.
Þó gafst í staup.
Staupr af víni gamli Gvendur
gjarnan hann sér fær..
Stundum er þá kalinn kendur,
kláraði tvær í gær..
Í gær kom mikill maður
Michael Richard Pence.
Hann er guðsvin glaður
Getur aldrei orðið lens.
Lensaðií í hreinaa höfn
hggprúður skipstjórinn.,
Sínu fleyi í heima höfn,
hugprúður skipstjórinn.
Skipstjóri stendur á skútunni sljór,
skakkur og slappur af stautum.
Svolgrar að síðustu svellkaldan bjór,
svo við höfum eitthvað að taut'um.
Tautar og raular sultar söng
svangur göngu maður,
Áfram þrammar, leiðin löng,
ljósið sér, ætíð glaður.
Glaður til náðhúss geng ég keikur
sem glitrar allt með tignar brag..
Páfann við hefst nú harður leikur.
Til hamingju með klósett dag!
[i]
Daginn út og daginn inn
drauma margur ræður.
þarna flýgur fuglinn minn,
frá mér kæru bræður...
Bræðurnir sem brutust inn
í bátana frá Sandgerði.
voru eflaust skárstu skinn
þó Skúli nefndi þá merði.