Nei, eigi vorum það vér né aðrir er nefndir hafa verið (en að breyta málfari voru í þessum þræði er góð hugmynd).
Sá er um ræðir hefur eigi sést lengi, var aldrei sérstaklega virkur hér en er samt líklega vel þekktur.
Nei, Semmning (hvar ætli hann sé annars ?) var virkastur í Sögur, gátur, leikir og dægradvöl ef vér munum rétt en sá er um er spurt dreifði kröftunum meira ef vér munum rétt. Hann var þó aldrei jafn virkur og Semmning.
ekki vildi svo skemmtilega til að Fári Egilsson nokkur hafi komið með ofangreind orð? Ljómar upp yfir eigin vitneskju
Rétt, Fári Egilsson var það.
Fjarri sé það mér að skemma góða skemmtun mætra manna, en þið vitið af því að það er hægt að leita að þessum setningum með leitinni á Lútinum?
Jú, en það er svindl. Menn eru heldur ekkert að Googla eftir svörum í Poppkommunni og spurningakeppni Tinna.
ei er mikil skemmtun í slíku svindli. Hrökklast aftur á bak og hrasar við
hver kom með eftirfarandi flegna línu:
Árans. Ég hélt að ég myndi öðlast Jedi krafta við að verða MS. Til hvers er ég eiginlega að þessu fyrst ég get ekki hoppað upp fimm hæðir eða stöðvað byssukúlur með geislasverðum? Bíddu bíddu! Ertu þá að segja mér að rektór sé ekki að úthluta geislasverðum við útskrift!?
Þetta eru svik! Ég er hættur í msnámi og farinn að vinna á Subway!
Hljómar eins og það gæti hafa verið Hakuchi.
Jú, en það er svindl. Menn eru heldur ekkert að Googla eftir svörum í Poppkommunni og spurningakeppni Tinna.
Nú.....Öhhh..........er það ekki?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við ö..hehe... ei var það lengra, mikið rétt mikið rétt! endalaus gleði og hamingja... það var Hakuchi nokkur er mælti þessi orð
Jú, en það er svindl. Menn eru heldur ekkert að Googla eftir svörum í Poppkommunni og spurningakeppni Tinna.
Það er nú víst eitthvað um að slíkt sé gert og er eigi bannað sé það gert í hófi. Enda er þarna hægt að bera upp spurningar sem nánast enginn veit svarið við. Vér gætum t.d. auðveldlega komið með spurningar þarna af svo þröngu og sérhæfðu sviði að nær útilokað er að nokkur gesta hér myndi vita svarið og m.a.s. væri erfitt að googla svarið og erfitt að gefa vísbendingar aðrar en svarið sjálft. En slíkar spurningar yrðu líklega frekar leiðinlegar og í sumum tilvikum alltof mikið fræðilegs eðlis.
Um orðsnilldagátuleikinn finnst oss gegna aðeins öðru máli, þar leiða vísbendingar alltaf að lokum til svars og því óþarfi að 'svindla'.
En að næstu orðsnilld, hver sagði þetta:
Ingeborg Solrun er svefnsófi og er vörumerki í eign IKEA
Aaaahhh ég er níbúinn að lesa þetta en man ekki hver skrifaði. klórar sér í höfðinu vað það nokkuð Hóras?
Enginn þessara. Sá er um er spurt er fastagestur hér en þó eigi í hópi þeirra allra virkustu.