Opnum huga ávallt tel
menn eigi að taka gríni.
Með opnu koki kann ég vel
að kyngja brennivíni.
Brennivíni,Skúla í skál
skenkti hún Gunna.
Þeirra á milli brennur bál
börnin samt þeim unna.
Unnarjónum út ég ræ
æðrulaus að vanda
Út í kaffið eg mér fæ
þá engin veiðist branda.
Brandara um Brand Ara
bullar Óli
með standara og standara
á stolnu hjóli.
Á stolnu hjóli sting ég af
í stundarkorn,
og gleymi mér við gullið traf
og gnægtahorn.
Gnægtarhorn ég vænt eitt veit
visku brunn og annað.
Golan þar er heldur heit
held það geti sannað.
Sannað er að Sigmundur,
sína skatta að fullu greiddi.
Og það var leiður lygmundur,
sem landsföðurinn burtu neyddi.
Neyðin kennir naktri konu að spinna
þótt nautnalíf sé auðkýfingsins vinna.
Þá hvarvetna í felum er að finna
að fylgjast grannt með streði okkar hinna.
Hinna sem ei vilja vinna
væblast um og engu sinna
Líkt og keling á spólur spinna
spangóla eins og hundur Tinna.
Tinna hitti Tinna
við Teigará.
Um hann fór að inna
hvort ætti markaskrá.
Markaskrá það merka plagg
mærðarfull og ekki í lagi .
Þar má finna róg og ragg
og rangfærslur af versta tagi.
------------------------------------------.( er það ekki bölvuð lygi .
Tæjur eru tælandi í Thaílandi,
smjaðrandi og smælandi
smælingjunum hælandi.
Highlander er hörkutól og heljarmenni.
Hygg ég þó af hólmi renni
ef hittir íslenskt framámenni.
Framámenna frækin sveit;
froskurinn og ég.
Eingin sveit er að ég veit
svo æðis- fokking -leg.
Framámenna frækin sveit;
froskurinn og ég.
Eingin sveit er að ég veit
svo æðis- fokking -leg.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Legháls bólgan bölvuð er
Binna gamla sagði.
Þegar gigtar fjandinn fer
og fellir mig á bragð.
Bragð er að þá barnið finnur (á sér).
Þegar barnið fer að fá sér
fara býsna margir hjá sér.
Sér er hver á baki ber
böðlast vesalingur.
Ógnar skelving hérna hér
Hallur gamli syngur.