Jólum ætti að jafna við
Juventus að vinna leik,
eða krof og kindasvið
og köldu læri beint úr reik.
Reikar einn um eyðisand
engu mun hann gleyma.
Nú er horfið Ljósaland,
og Lína bíður heima.
Heima bíður Lína lessa,
Lappi gekk að eiga þessa,
séra Geir bað guð að blessa,
gretti sig og hló,
mér er um og ó.
Heimabruggið hefur margan halinn fellt,
blindað, lamað, lostið, gelt,
lagaflækt og stundum velt.
Óvelt var hér ýmsum steinum.
Ekki hreyfa þá.
Því það veldur mörgum meinum,
meiðist höndin blá.
Blá er tátan Ligga Lá
loðin vel að neðan
Grösug virðist heiðin há
horft á fjallið héðan..
Héðan aldrey heyrist neitt
sem hávaða mun valda.
Því við alltaf ökum greitt
við ölvan söng með Kalda.
Kalda gerði nú í nótt
næðings rudda suddi.
Þokan læddist hægt og hljótt
heim er farinn Guddi.
Guddi eitt sinn gekk við sjó
og greip í þorsk í sjónum.
Skammt á eftir skrattinn smó
og skellti á ýsu klónum.
Klónaður er kisi minn
kúrir upp á palli.
Fagur ljós er liturinn,
ljúfur og nemdur Snjalli.
Snjallir fóru snáðar tveir til snúninga,
báðir fengu búninga
og beint svo gengu í rúninga.
Rúninga til gengur Gvendur
Gunna fylgist með.
Á réttarvegnum Sebbi stendur
stoltur og telur féð.
Féð er sent um fjarlæg mið
og falið á Meyja-Eyjum.
Svikararnir svo sækja um grið
af samsekum stjórnarpeyjum.
Stjórnarpeyjar prúðbúnir
pjakka um Krkjustræti.
En fylliraftar fáklæddir.
forðast svona læti:
Lætur mörgum listavel
að ljúga um sína hagi.
Fjármála-Bjarna fremstan tel
enda frábær gæi.
Gæi ugur fór á flakk
fullur var þann daginn.
Nældi sér í hest og hnakk
og hreikinn fór í bæinn.
Bær er sá án víls og vols.
Vona' eg til hans slefandi.
Langar mig til Lindarhvols
Lífið þar er gefandi.
Gefandi er lífsins lind,
góður finnst mér sopinn
Og góni uppi vestan vind
með vasapelan opinn.