Ég ætti að vera sofandi en er í staðinn að rifja upp X-Files... þetta voru frábærir þættir... allavega fyrsta serían...
Madaman rifjaði upp kynni sín við X-files ekki fyrir svo löngu, sem voru í minningunni alveg hreint æðislegir þættir. Eitthvað hefur minnið svikið hana eða þá að þeir eldast illa.
Annars er Madaman að svíkjast undan eins og svo oft áður og ætti að vera að vinna.
Ég er að vinna (rólegt) en mikið finnst mér að ég ætti að vera að róta í moldarbeði.
Sjálfsagt ætti ég að vera að gjöra eitthvað annað en að hanga á netinu. Horfir skömmustulegur í kringum sig
Vá, hér var framið þráðagrafrán... annars ætti ég eins og Kargur að vera að gera eiithvað annað en hanga á netinu.
Ég ætti að vera að hanga í netinu ... Stekkur hæð sína
Ég ætti örugglega að fara að sofa í hausinn á mér og nýta morgundaginn í eitthvað vitrænt. En það er ekki beint minn stíll svo gagnvarpið er það, heillin...
Setja í þvottavél...
Ég ætti að standa á krossgötum og vita hvert skuli halda.
Ég ætti að vera útí djöflaeyjunni að djamma af mér hormottuna.
Ég ætti að vera að sinna Blesa og er einmitt að því Ljómar upp
Ég ætti að vera plebbaleg og syngja eins og Silvía Nótt!
Veit ekki.
Þið ættuð að prófa að spurja Garbo. Starir þegjandi út í loftið