Hvar er þessi landlækur?
Á ég að svara báðum spurningunum í einu?
Hvernig getur það gengið?
Þarf tvígengisvél til þess?
Væri ekki góð byrjun að svara annarri?
Á ég að svara annarri manneskju?
En ekki hinni?
Ertu ákvæðaskáld?
Væri það ekki vont fyrir okkur lappa?
Af hverju væri það vont fyrir lappa?
Er Garbo lítið fyrir lappa?
Hvernig lappa?
Hans Kára litla?
Hver er þessi Hans Kári?
Getur hann verið sonur Hans Sölva?
Hva, var hann ekki vatnspungur?
Var það þá Hans Óli?