Ég var að ganga inn á skrifstofuna mína og uppgvötaði, mér til hrellingar, dauða flugu á gólfinu.
Hvað á maður að gera í svona tilvikum? Hvernig á maður að haga sér? Á ég að hringja í lögregluna og tilkynna andlátið/morðið?
Ég tók að vísu fluguna upp og lagði á púða, en passaði upp á að tússa í kringum líkið fyrir lögregluna.
Þú átt vitaskuld að hafa samband við rannsóknadeild Húsdýragarðsins.