Ég sé að einhver tiltekt er í gangi á þessari stundu og langar mig því að nota tækifærið og koma með ábendingu.
Er ekki hægt að búa svo um hnútanna að eftir að einhver hefur valið sér nýja mynd, þá fari gamla myndin ekki aftur í myndasarpinn? Ástæðan er sú að eftir einhvern tíma fer fólk að venjast viðkomandi karakter með vissa mynd. Skipti hann og gamla myndin lendir í sarpinum og annar karakter tekur hana upp á sína arma, getur það valdið heldur hvimleiðum ruglingi.
Nær væri að eyða þeim myndum sem skipt er út, nú eða þær varðveittar í skjalasöfnum Baggalútssamsteypunnar.
Annar möguleiki er að endurnýta myndir en þá ekki fyrr en nokkrir mánuðir eru síðan þær voru síðast notaðar.
Mér datt ekki í hug að þið gætuð verið með svona snjallar hugmyndir...
klappar fyrir Hakuchi og Vlad
Algerlega sammála. Og hér með lofa ég að skipta ekki um mynd framar. Enda frosið á mér glottið!
Já, gamla myndin af mér var sem betur fer sett í geymslu einhversstaðar... spurning hvort maður eigi að fara að heimta hana úr helju... en sjálfsagt eru ekki margir sem muna hvernig sú mynd var, eða hvað?
Aldrei séð'ana svo hún er ný fyrir mér, Regla 13½ og ég segjum: Skiptu, Skabbi!
Já, gamla myndin af mér var sem betur fer sett í geymslu einhversstaðar... spurning hvort maður eigi að fara að heimta hana úr helju... en sjálfsagt eru ekki margir sem muna hvernig sú mynd var, eða hvað?
Frábær mynd og hárgreiðslan glæsileg.
Þú ert glæsilegur eins og þú ert Skabbi minn.
Mér finnst þú minna á Robbie Williams á nýju myndinni, Sverfill. Er það með vilja gert?
Ég hefði viljað sjá Sverfil með upphaflegu Burt Reynolds myndina sína. Einhvern veginn passaði hún hvað best við nett-kæruleysislegt öðlingsfas hans.
Hvað kemur til að allar nýmyndir séu með bláma.
Er þetta eitthvað auglýsingartrikk fyrir sjálfstæðisflokkinn. Eitthvað sem herjar á undirmeðvitundina...