Ég biðst afsökunnar að hafa látið verða af þeim ósið mínum að ganga inní umræðurnar án þess að kynna mig af réttu ráði, en slíkur getur ákafinn verið þegar maður sekkur sér ofan í fræðimennskuna.
Nafn mitt er Dr. Merkwürdigliebe, sem að mætti leggja fram á Íslensku sem Undrást, en hefur þrotlausri baráttu minni við mannanafnanefnd engu skilað nema taumlausu mannfalli og gnístan tanna í ótöldum ekkjum, sem virða má fyrir sér á götum Reykjavíkur betur í sumar.
Til menntunnar minnar telst doktorsgráða í ofurmannfræði, en erfitt hefur verið að fá slíka gráðu viðurkenna hérlendis, en ég hef einnig mikla reynslu af undirmennsku, undirferli, undanhaldi og undaneldi.
Velkominn. Hagaðu þér vel og stafsettu ambögur þínar sómasamlega og þér mun vel farnast.
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkominn. Hafið þjer líka reynslu af undirróðursstarfsemi ?
Ég þakka góðar móttökur en undirróður hef ég því miður eingöngu létt fiktað með.