Hlebbi leiðinlegi tjáir sig: Mér finnst Grímsgátan ekki virka. Látum vera þó að nafn fjórmenninganna sé ekki alltaf eins ritað, t.d. Þór/Thor en að faldar séu vísbeningar um Friðþór, Eyþór, Gunnþór og Hafþór og svarið kallað Þór - það finnst mér frekar vont.
En ég svo sem enginn gátumálaráðherra.
Segir sá sem sleit nikkið sitt út í gegnum endaþarminn á sér.
En jú jú, ég er alveg sammála.
Varð bara að prófa hvort ég kæmist upp með þetta.
Þekt nú eru þolmörkin á þræði hér,
það ber helst að þakka mér.
Þríhyrninga þráði brúna
og því með hraði burtu vikið.
Undir dóttur Njarðar núna,
naumast hnyklar brýrnar mikið.
Ég hef lengi reynt að finna fjórðu persónuna til að passa inn í þessa gátu. Fyrstu tvær línurnar eiga við um sömu persónuna.
Enginn með hugmynd? Fyrsta manneskjan er frá Norðurlöndunum, önnur er ekki mennsk og þriðja er fræg úr listasögunni.
Því miður, hef ekki hugmynd... nema ef vera gæti Gróa
Sænskt stjórnmálahneyksli, sælgætisgerð, frægt málverk.
Mona Sahlin,
Móna,
Móna Lísa..........
Ein lauflétt til að lífga upp á þráðinn.
Skrifaði'um Allan,hinn ernasta mann,
um íslenska þjóðhætti vissi hann nóg
Í útvarpi heyrðuð þið efalaust hann
í annarri hendi með sverð, hinni plóg.
Skrifaði'um Allan,hinn ernasta mann, Jonas (Gamlinginn sem fór út um gluggann og hvarf)
um íslenska þjóðhætti vissi hann nóg Jónas Hallgrímsson?
Í útvarpi heyrðuð þið efalaust hann Jónas Jónasson (Kvöldgestir)
í annarri hendi með sverð, hinni plóg. Jónas Jónsson frá Hriflu
Í annarri línu er átt við Jónas sem skrifaði bókina Íslenzkir þjóðhættir. Árnason minnir mig.
Þar átti ég við Jónas Jónasson frá Hrafnagili. Þar með heita allir mennirnir Jónas Jónasson, nema Jónas Jónsson.
Já, datt í hug að ég væri að rugla saman þjóðháttasafnaranum og þjóðsagnasafnaranum. Ljómar upp
Fyrir Krist og gullhring galt hann lífi.
Gekk hann fram af þjóð á augabragði.
Sjónhvörf vill að senn hér alla hrífi.
Að samtalsmeðferð drög hann eitt sinn lagði.
augljóslega Sigmundur.
en þekki samt bara síðustu tvo. Freud og Gunnlaugsson, í hinni röðinni.
Mér finnst ég kannast við þá tvo fyrstu. Annar er Brestisson og er úr Færeyingasögu. Hinn er Johannson og er úr Morgunblaðinu og bjó í Vestmannaeyjum.