Draugagangur mirkurs magt
magnast árans slenið.
Mikið var á Láka lagt
er lagðist hann við grenið.
Grenitré með glingri á
gjarnan sést á jólum
Allir krakkar eiga þá
eitthvað frí frá skólum.
Í skólum öllum kátir krakkar
koma með í skjessuleik.
Stelpurnar eru furðu frakkar
en flestar vaða bara reyk.
Reykjavík er besta borg
sem besti flokkur stjórnar
gjarnan þar þó grát og sorg
er Gnarrinn öllu fórnar.
Fórnar öllu Gnarrinn galinn
gapandi sá ári þver.
Ærðist þegar helvíks halinn
hentist upp í loftið ber.
Berst með húmor borg í kær
besta flokksins stjarnan skær
en Gnarrinn dóm ei góðan fær
geld er honum betri ær
Ærnar mínar Doppa og Dröfn
dvelja hem'á túni.
Hyrna, Móra,Sjonna,Sjöjfn
og Stjarni hrússinn lúni.
Lúna hef ég lífsins sýn,
liggja vil og hrjóta.
Öll gerast megi afrek mín,
milli kvennmannsfóta.
Fóta netta tátan Tóta
tekur sporið létt.
Mærin unga furðu fljóta
fer á harða sprett.
Hyrna, Móra,Sjonna,Sjöjfn
og Stjarni hrússinn lúni.
E-he-hemm...
Hyrna, Móra,Sjonna,Sjöjfn
og Stjarni hrússinn lúni.
E-he-hemm...
MEEE.
Eftir þessa slitnaði:
lappi 18/9/12 13:42
Drykkjuglímu trölla tök
trylltur stígur dansinn.
Eins og væru ragnar rök,
rúmbu og Óla skannsinn ,
Skannsinn hefur skemmt mér æ
er skal ég klaufum sletta.
Fínni dömu í fangið næ
með fótmenntina netta.
Nett og smá, nokkuð frá,
nothæf vart, á þing.
Henni á, hafa má,
heljarmikið bling.
Blingið er, bjart,
borið sem skart.
Hó-mennið hart
hefur þar part.
Partur þings með kvein og kvört
á kölska eru bandi,
stór sá hópur stækkar ört
og stjórnar voru landi
Landi er vökvi fúlur fjandi
fynnst á tunnun hér og þar.
Sem æðir umm með bál og brandi
bölvaldurinn alstaðar.
Alstaðar og hvergi ég er á ferðinni
upp um fjöll á borgarinnar strætum.
Einverunnar nýt ég í allri mergðinni
sem óskapast í kossaflensi og þrætum.
Þrætubókaþræðir
þekja marga vefi,
spyrnta spjallborð við.
Nepjan um þá næðir
nábít með og kvefi,
engum gefur grið.
Augu hver úr annars tóftum kroppar,
enginn sinni paranoju droppar,
meðan einhver ósmekkvísi toppar
upp í rassgat næsti maður hoppar.