— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra landa sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 370, 371, 372 ... 459, 460, 461  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 22/4/12 10:46

Ósköo finnst mér viskí vont
votka er kjarna drykkur.[/i]
Og kampavín er marklaust mont
margra. Hvað finnst ykkur?

Stafsetjum nú stundum rétt
svo stöku megi skilja.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 22/4/12 10:50

Stafsetjum nú stundum rétt
svo stöku megi skilja.
stuðlahrúga hrynur slétt,
ef hlýðir rö0ngum vilja.

svo mun enn að enginn kann
öllum rétt að kenna.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 22/4/12 17:34

Svo mun enn að enginn kann
öllum rétt að kenna,
Í mér lærdóms bálið brann
brátt ég hélt á penna.
-------------------------------------------
Þegar rökkvar taka títt
tilfinningar völdin.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 22/4/12 19:08

Þegar rökkvar taka títt
tilfinningar völdin.
Sprek á ástarbálið blítt
bætist seint á kvöldin.

Ein þó situr kona kæn,
kennir engan manninn.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 22/4/12 20:17

Ein þó situr kona kæn,
kennir engan manninn.
Að vera í framan vinstri græn,
varla bætir ranninn.

Örvæntu samt ekki snót,
á þér hefur Mjási trú.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 23/4/12 16:58

Örvæntu samt ekki snót
á þér hefur Mjási trú.
Komdu þér á manna mót
mærin ung og hana nú.
------------------------------------
Vorið milt í lofti liggur
lifna tré af vetrardvala.[/s]

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 23/4/12 23:12

Vorið milt í lofti liggur,
lifna tré af vetrardvala.
Ljós af himni laufið þiggur,
letisljóir kettir mala.

Víst er það og verður sannað:
Vorið er á næsta leiti.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 24/4/12 07:46

Víst er það og verður sannað:
Vorið er á næsta leiti.
Brumar reynir, ösp og annað,
alla grænka sjá má reiti.

Lengir daginn, ljósið eykst,
lifna bæði grös og menn

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 24/4/12 11:09

Lengir daginn, ljósið eykst,
lifna bæði grös og menn.
Allt sem hefur visnað, veikst,
í vetur – reynist tóra enn.

Um glugga alla glampar sól,
gólfið þakið ryki og ló

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 24/4/12 13:52


Um glugga alla glampar sól
gólfið þakið ryki og ló.
Umm strætin æða trilli tól,
trillur fara út á sjó.
---------------------------------------
Stjarna er í taumi treg
trippi á þrðja vetri.

lappi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 25/4/12 18:56

Stjarna er í taumi treg
trippi á þriðja vetri.
Hún er alveg eins og ég.
Ertu nokkuð betri?

Mínar illu eðlishvatir
oft ég reyndi að temja.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 25/4/12 19:03

Mínar illu eðlishvatir
oft ég reyndi að temja.
Innkirtlarnir eru latir
og þeir vilja semja.

Kirtlaveiki kvaldi mann,
kvartaði hann sáran

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 26/4/12 13:25

Kirtlaveiki kvaldi mann,
kvartaði hann sáran
Lagðist svo í lekandann,
lúmsk er staka Báran.

Kvartsemi er konum töm
kjaftsemi okkur hinum

Glettilega grár á vangann.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Stephan 26/4/12 23:09

Kvartsemi er konum töm
kjaftsemi okkur hinum
Ef frúin er í geði gröm,
gakktu út með vinum.

Farðu beint á kósý krá,
kaldan bjórinn drekktu.

Question authority!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 26/4/12 23:57


Farðu beint á kósý krá,
kaldan bjórinn drekktu.
Út við sundin bongo blá
burtu sorgir rektu:
-----------------------------------------
Bænum mínum heima hjá,
horfi ég til fjalla.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 27/4/12 00:23

Bænum mínum heima hjá,
horfi ég til fjalla.
Mér er sem ég sjái þá
sautján fulla kalla.

Hefja sig í hásan söng,
hlíðarbrekku undir

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 27/4/12 14:29

Hefja sig í hásan söng
hlíðabrekku undir.
Hjáróma kyrja lögin löng,
lagvinir út umm grundir.
-------------------------------------------
Fjárréttinni heima hjá
hrútar gamlir bíða.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 27/4/12 16:26

Fjárréttinni heima hjá
hrútar gamlir bíða.
Aumingjarnir ekkert fá
ærnar vilja þá ei sjá.

Jæja komið kaffi hlé
kræsingar á borðum.

KauBfélagsstjórinn.
        1, 2, 3 ... 370, 371, 372 ... 459, 460, 461  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: