Dimm eru élin og dagarnir fullir með doða og þunga.
Léttu minn Drottinn af sálinni drunga,
depurð og kvíða af hjartanu unga.
Mætti ég biðja um mestmegnis bjartviðri og meira af hita,
magntölur hærri af mollu og svita,
mórauða skjáina sólgeislar lita.
Dimm eru élin og dagarnir fullir með doða og þunga.
Léttu af sálinni, Drottinn minn, drunga,
depurð og kvíða af hjartanu unga.
Mætti ég biðja um mestmegnis bjartviðri og meira af hita,
magntölur hærri af mollu og svita,
mórauða skjáina sólgeislar lita.
Annars flott.
Til bóta ... og gæti verið verra: Hefði jafnvel búizt við að sjá illkvittnislegan botn með "... punga".
Stilltu þig, gæðingur. Stytsti dagur ársins er á morgun, 22. desember: http://en.wikipedia.org/wiki/Solstice.
Hann samdi þetta örugglega á stytsta degi síðasta árs.
Þetta er vísindalegt aukaatriði sem á í bezta falli heima í vísindahorninu.
Hikar við og ákveður að betra að þegja og vera álitinn api, en að tjá sig og staðfesta að hann sé í raun grænmálaður kannsteinn með kúa blæti
Hikar við og ákveður að betra að þegja og vera álitinn api, en að tjá sig og staðfesta að hann sé í raun grænmálaður kannsteinn með kúa blæti
T,, vantaði TBlótar herfilega og rífur hár sitt
Fyrst þú kannt að vitna í geturðu líka lært að leiðrétta. Þú smellir á skástrikið og lagar. Einfalt.
Vér töldum það æ stíl, eður fanskafna fjöður.