Dansarðu ekki, stelpudansa?Mundar luftgítarinn
Hver gæti hugsanlga ráðið við Jón Bjarnason í limbó?
Hildibrandur í Bjarnarhöfn?Sleikir út um hugsandi um hákarlinn í Bjarnarhöfn
Hugsar um hákarl sem bráðnar í munni Heldurðu það?
Eru þeir ekki bræður, eða frændur. Eeee...Hildibrandur er hann ekki farinn að verka hákarl í himnaríki?
Hann er svosem nógu himneskur hákarlinn hjá honum, eða hitti ég hann ekki í fyrravor?
Hvernig haldiði að sé að verka hákarl í himnaríki?
Varla verka þeir himneskan hákarl í helvíti?
Verðum við ekki að spyrja Jón Kalman?
Man hann það?
Þarf hann ekki að hafa verið þar til þess að geta munað það?
Eru einhver mörk milli draums og veruleika?
Áttu í einhverjum erfiðleikum með að finna þau mörk?
Er það nokkuð þess virði að leita að þeim?
Eða kannski veruleikann?