Blálviðri og bleytuél
bráðum landann hræða.
Stilla máttu veðurvél
svo varla muni næða.
Ef þú leggur eyrun við
eflaust fljótt þú heyrir
Ef þú leggur eyrun við
eflaust fljótt þú heyrir.
Þennan leiða norðan nið,
norn úr fjöllum keyrir.
------------------------------------
Eftir bísna langa bið
bjargast flest að lokum.
Eftir langa býsna bið
bjargast flest að lokum
þegar blessað vínið við
til vökvunar svo slokum.
Það kvöldar oft í október
eftir daginn.
Það kvöldar oft í oktober
eftir daginn.
Enginn tínir hin bláu ber
og býr í haginn.
---------------------------------------
Upp á Esju gengur greitt
garpurinn hann Fúsi.
Upp á Esju gengur greitt
garpurinn hann Fúsi.
Á rauðum skóm hann rokkar feitt
og raðar í sig snúsi.
Ef allt þetta fólk sem nú æðir á fjöll
erindi á þarna á toppinn
Ef allt þetta fólk sem nú æðir á fjöll
erindi á þarna á toppinn
það getur ey verið að góna á tröll
eða gott vera að fá sér í kroppinn.
Vaxtabætur vil ég fá
þó vexti enga greiði.
Ef allt þettað fólk sem æðir á fjöll
erindi á þarna á toppinn.
það fellur á kné og tilbiður tröll
til þess að fá hita í kroppinn.
-
Vaxtabætur vil ég fá
þó vexti enga greiði.
Ólmur mun ég þiggja þá
þúsund kalla veiði.
-------------------------------------------
Hungraður kemur og biður um brauð
blessaður gefðu af kærlleik.
Hungraður kemur og biður um brauð
blessaður gefðu af kærleik
Afi minn sótti það á honum Rauð
einstökum skeiðandi færleik.
Danir seldu Isslendingum maðkað mjöl
og mæddu þá með leiðinlegu sproki
Danir seldu Isslendingum maðkað mjöl
og mæddu þá með leiðinlegu sproki.
Til húsbygginga gáfu okkur fúna fjöl
við fengum loksins nóg af þeirra oki.
Ekkert finn ég orðaskart
andi minn nú linur.
Ekkert finn ég orðaskart
andi minn nú linur.
Botn ég spinn við bögupart
og blíðka sinnið, vinur.
Innivið í leti ligg
á laugardegi þessum.
Innivið í leti ligg
á laugardegi þessum.
Bíð einn dag svo bljúgur þygg
blóðið Krists í messum.
Dánarför og fregn um jörð
fæst á morgni hverjum.
Dánarför og fregn um jörð
fæst á morgni hverjum.
Mín er vist í veröld hörð,
vafin þraut og erjum.
Áðan fór ég út í búð
eftir kók og snakki.
Áðan fór ég út í búð
eftir kók og snakki,
svo aldrei framar yfirhúð
undan skinni bakki.
Skúrir falla á skógarblett,
skín á meðan sólin.
[b
Áðan fór ég út í búð
eftir kók og snakki..
Lítra af mjólk og snúin snúð,
snuð og glás af hakki.
Skúrir falla á skógarblett
skín á meðan sólin.
Flæðir enn við Kögur klett,
kætast börn um jólin.
----------------------------------------
Regnið ört til foldar fellur,
fyllir allar lautir hér.
[/b]
Skúrir falla á skógarblett,
skín á meðan sólin.
Þetta er bara nokkuð nett,
ég næ í Canon-tólin.
Regnið ört til foldar fellur,
fyllir allar lautir hér.
Regnið ört til foldar fellur,
fyllir allar lautir hér.
Af hverjum dropa heyrist smellur,
hrikalega í eyrun sker.
Afkoman er ekki góð,
er á lögum halli.
Afkoman er ekki góð,
er á lögum halli.
Um það svaka sorgleg ljóð
syngja Þrjú á palli.
Stríplast úti Ösp og Björk.
Af þeim laufið fýkur.
Stríplast úti Ösp og Björk.
Af þeim laufið fýkur.
Úr þeim smíða eina örk
yfir fyrr en lýkur.
Eilífðin er eyðimörk,
alla tíminn svíkur