Svo lengi ropar sem lifir...
Blál! ۩
Jarmar xT
Ú, alltaf eitthvað að gerast hér... Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
۩
Það held ég nú
۩
Ja, nú þykir mér týra. Velkominn Albert. Ljómar upp
vorkoman kemur á endanum, skál!
Þó virðast sum ár vorlaus sem vonlaus.
Ávallt er gaman hingað að koma til samfundar við Gestapósins laumupúka; skál ! Sýpur á fagurbláum drykk og sullar sjálflýsandi, fagurbláum drykk ofan í glös þeirra viðstaddra er sig um slíkt kæra.
skálin er hál, skál
Þrumar upp hurðinn Loksins rata ég aftur til baka. Svolgrar í sig jólalæknaspíra
Hvar eru allir? Hefur skortur á læknisþjóustu leitt til ótímabærs dauða gestapóa? Starir þegjandi út í loftið
Ævinlega velkominn doktor Sauðbergur. Já heilsa Gestapóa er á niðurleið, einkum sú andlega. En hún ætti að snarlagast ef þú ferð að fara hér reglulega á stofugang. Skúrar ganginn
Leggst inn á stofu og bíður eftir gangverkinu
Það tilkynnist hjer með opinberlega að það er á við hina besta jólagjöf að sjá Dr Zoidberg hjer á ný. Því er síðan til að svara að nokkuð mörgum Gestapóum hefur að því er virðist verið rænt af óvinum ríkisins; eru læknar og heilbrigðisstarfsfólk þar á meðal. Þó hefur t.d. Barbie nýlega snúið aftur.
Skál ! Kemur með sjálflýsandi, plútóníumblandaðan kóbaltdrykk - og það í nægilegu magni fyrir fleiri en bara sjálfan sig
Þrumar upp hurðinn Loksins rata ég aftur til baka. Svolgrar í sig jólalæknaspíra
Hvar eru allir? Hefur skortur á læknisþjóustu leitt til ótímabærs dauða gestapóa? Starir þegjandi út í loftið
Já. A.m.k. hefur þeim fækkað óeðlilega mikið. Sýpur á fagurbláum drykk (Sennilega fjölritunarspritti)
Hrekkur illilega við og fellur afturábak út af þræðinum.
Skreiðist aftur upp á sviðið.
Hvað er að sjá? Lugu vor augu, eður var hér Sauðbergur á ferð? Hefir hann enn ráð fyrir hinum fleygu árásarsauðum? Getum vér brátt barið niður uppreisnarseggi í Færeyjum, eður bylti hinn mikli doktor sér kannske einvörðungu í gröf sinni.
Stekkur hæð sína af gleði, en lítur í sömu stund út um gluggann, dæsandi mæðulega. Þessar aðfarir minna í besta falli á bauv.
Vér athuguðum aldna þræði og komumst að því, að í þá gömlu daga þótti þráður slappur, ef eigi var svarað þar í tíu mínútur.
Jamm. Hér er allt á fallanda fæti. Stynur þungann
Þetta er að verða eins og á Vestfjörðunum. Allir flúnir suður í Feisið.