Vjer erum að u.þ.b. að ljúka við Sjálfstætt fólk.
Madaman er að glugga í Ég man þig, eftir hana Yrsu.
Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson. Það hefði verið hægt að gera fína bók með þennan efnivið en hann skýtur, finnst mér, langt yfir markið.
Danmerkursaga Saxa málspaka á latínu. Myndi eflaust skemmta mér betur við lesturinn ef ég kynni latínu. Er betri í kirkjuslavnesku en hana notaði Saxi víst ekki. Spurning um að svissa aftur yfir í kúrekann Morgan Kane eftir norsku húsmóðurina Margit Sandemo. Ég er nokkuð vel að mér í Guðbrandsdalsmállýskunni.
Dönsku útgáfuna af Anders And & Co 2004. Besti árgangurinn til þessa.
Hustler frá maí 1995, gott eintak.
www.baggalutur.is/gestapo
Athyglisverð tilviljun. Vjer erum líka að lesa þetta.
Er annars vegar að lesa Rokland eftir Hallgrím Helgason og hinnsvegar Englar og djöflar eftir Dan Brown
Ég var einmitt að lesa Engla og Djöfla á sama tíma og Páfinn drapst síðast... mér þótti það mjög grunsamlegt. Grunaði Dan Brown mikið um græsku.
Annars er ég núna að lesa A Question and Answer Guide to Astronomy. Yndisleg bók.
Ég er að þræða mig aftur í gegn um spilin 182 á bridgehátíðinni.
Tvímenningurinn: http://reykjavikbridgefestival.com/index.php?m=D3&id=M_PAIRS2011&iid=IF_OPENPAIRS2011&m=D2
Sveitakeppnin: http://www.swangames.com/magic/butler/473.htm
Lærdómsríkt.