Garbo er að geta hvað gestapóinn á undan er að gera.
Örlyndur Skarpfés er að geta hvað gestapóinn á eftir er að gera.
Billi er sennilega sofandi... eða að berjast við dreka.
Grágrímur er að velta fyir sjer hvort hann eigi að mála sig gráan eða breyta nafni sínu í Blágrímur.
Garbo er að leiklesa þríleikinn hans Stieg Larson, og smyr hverja kæfubrauðsneiðina á fætur annari.
Madam er að borða brauðsneiðar með kæfu.
Regína er að ráða krossgátu.
Garbo er að lesa spennandi bók í hægindastól sínum og njóta þess að vera í fríi.
Grýta er að skenkja sér púrtvínsglas og finna til bleikrósóttu baðhettuna fyrir hádegisbaðið:
Garbo er í þann veginn að skella útidyrahurðinni hjá sér í lás fyrir nóttina.
Línbergi langar í snú - snú, en hann er einn heima, þannig að hann er að reyna að setja saman algeng heimilistæki og húsbúnað til að búa til snú - snú þjark.
Madam er vonandi að grilla önd.
Upprifinn er svekktur yfir hafragrautnum, sem hann fékk í kvöldmat.
Fergesji er að bera fótakrem á iljarnar fyrir nóttina.
Regína er að strjúka sig alla og bera á sig body butter