Ég vil stofna nefnd um innsláttarhraða meðal Gestapóans. Mér blöskrar hreinlega þegar ég hugsa til þess að eins dags skammtur af útfærðum hugsunum Pravda, sem er nota bene forgöngumaður þráðar þess er við nú höngum á, er á við innslátt allra annarra hér síðasta misserið. (Sé mafíuleikurinn undanskilinn)
Ég frábýð mér svo að gerast ritari í þessari nefnd, enda ekki fljótur á takkaborðinu hérna fyrir neðan skjáinn minn.
Ég er að hugsa alvarlega um að selja hluta af heila - og taugakerfi mínu til fjölföldunar , nefnilega kjarnsýrur úr taugafrumum. Hvernig litist ykkur á að ég léti búa til betri heila úr sjálfum mér en þennan?