Önnur línan er dúbíus.
Þú setur ekki örk niður á blað.
Einmitt! Þar hikstaði ég líka.
Önnur línan er dúbíus.
Þú setur ekki örk niður á blað.
Það er reyndar rétt.
En finnurðu dæmi um að ferstikla geti verið kennig fyrir lands- og lagarskip?
Þar er einmitt mitt strand. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Það sem sett er niður á blað getur verið vísa og orð og ýmsar útfærslur á því, Einnig einhverskonar skriffæri og jafnvel hugleiðingar. Brýtur heilann
Siglir yfir sæ og láð
set ég niður á þetta blað
þar hafa margir þreyttir áð
þvílíkt nafn á konu er það.
Önnur línan er dúbíus.
Þú setur ekki örk niður á blað.
En það er samt sagt " setur niður á þetta blað", maður setur eitthvað niður á örk. Alla vega skil ég þetta þannig
Má ekki skilja aðra línuna í sambandi við prentsetningu á dagblöðum? Dagblöð eru jú prentuð á arkir.
Það getur alveg verið að örk sé orðið sem Grislingur hefur í huga. Hann sker úr um það þegar hann mætir.
Örk?
Siglir yfir sæ og láð = Örkin hans Nóa
set ég niður á þetta blað = blað er örk
þar hafa margir þreyttir áð = kista (Hótel Örk)
þvílíkt nafn á konu er það. = Veit ekki. Kannski heitir einhver skáldsögupersóna Örk.
Örk er það - ég held að allar skýringar séu komnar - Örk er einfaldlega ísl. kvenmannsnafn -
Önnur línan er dúbíus.
Þú setur ekki örk niður á blað.
En það er samt sagt " setur niður á þetta blað", maður setur eitthvað niður á örk. Alla vega skil ég þetta þannig
Einmitt sem ég meinti
OK. Ég parsaði setninguna ranglega.
Í því klaufinn allt er með.
Í mig þar ég matnum treð.
Þó minn klerkur þetta iðji.
Þekktur Silfurgrundar niðji.
messi?
Klárlega rétt hjá Grýtu, ekki satt... með svohljóðandi skýringum væntanlega:
- allt í klúðri = messi
- matsalur sjómanna = messi
- syngi guðsþjónustu = messi
- (niðji Silfurgrundar = Argentínumaður; boltastrákurinn Lionel) Messi
Skemmtilegt. Vel gert Hlebbi og Grýta jafnvel Znati líka! Ljómar uppundir hendur
Jú, einmitt. Ég ætlaði að setja skýringarnar inn, en þurfti að hlaupa aðeins frá.
Klárlega rétt hjá Grýtu, ekki satt... með svohljóðandi skýringum væntanlega:
- allt í klúðri = messi
- matsalur sjómanna = messi
- syngi guðsþjónustu = messi
- (niðji Silfurgrundar = Argentínumaður; boltastrákurinn Lionel) Messi
Þaheldé.
Nauðsynlegur ef neglan fer
nafn á stræti tengist hér
einn af fjórum alltaf er
eyðsluklóin temur sér.