Allt eins og blómstrið eina
uppvex á sléttri grund.
Kalt, einsog ómstríð kleina,
kremkex á réttri stund.
-----------------------------------------
Vegir liggja til allra átta,
enginn ræður för
Vegir liggja til allra átta,
enginn ræður för
Í aftursætinu er að þrátta,
úrill kona með slör.
Ég labbaði í bæinn, mér létt í skapi var
að líta inn á búllu samkvæmt vana.
Ég labbaði í bæinn, mér létt í skapi var
að líta inn á búllu samkvæmt vana.
Ég leitaði að mellunni sem mætir stundum þar
en meinhornið var stungið af með Kana.
Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur
og fagrar vonir tengdir líf mitt við.
Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur
og fagrar vonir tengdir líf mitt við
mun ég upp vekja víst þá haninn gelur
og vona að þú kippir mér í lið.
Hann var á leiðinni á ball, léttur og hress
og leið bara skratti vel.
Hann var á leiðinni á ball, léttur og hress
og leið bara skratti vel.
Við svitan sagði bless
og settí hárið gel
Nú er hún Gunna á nýju skónum
Nú er að koma jól
Nú er hún Gunna á nýju skónum
Nú er að koma jól.
Nú er fullt af nýjum rónum
sem norpa á Arnarhól.
Það aldin út er sprungið
og ilmar sólu mót.
Það aldin út er sprungið
og ilmar sólu mót.
Loft er læfi þrungið
lítil von um bót
Komdu nú að kveðast á
kappinn ef þú getur