Þrætubókar- þykja -fræði þeim mun betri
er sjúga þau úr sálartetri
sönginn – líkast dimmum vetri.
Vetri lýkur, víst er það, um vorjafndægur.
Hitamælir hraust þó lýgur,
herrann enn í nefið sýgur.
Sýgur í sig sunnanblærinn sólarhitann.
Þegar krakkinn þurrkar svitann
þá er gott að fá sér bitann.
Bitann um ég bundið hef og brugðið snöru.
Meira skal ei lífið lengja,
löngu orðið mál að hengja.
Hengirúm ég eitt sinn átti, ósköp lítið
löngum var það lítils metið
líkt og þið víst nærri getið.
Getið hef ég geðveikt marga góða krakka.
Innheimtustofnun einni þakka
að aldrei fá þau jólapakka.
Jólapakka ég vil fá frá Jólasveinum.
Geðveikt fullt af gjöfum fínum,
gleðst ég þá með osti og vínum.
Vín er borg á víðum sléttum Vatíkansins
þar sem nýtur nektardansins
nýfrelsaður andi mannsins.
Mannsins er það mesta yndi mjöð að drekka
þá er gott á krá að kíkka
því konur allar talsvert fríkka
[Er þetta ekki líka braghenda?]
Fríkka konur flestar víst er fjölgar sjússum
þá slá menn feil á foxy tussum
og fituhlussum.
Ég myndi segja það.
Fituhlussum fer ég með á fínar strendur.
Þar við nakin löbbum létt um,
líklegt að það verði í fréttum.
Fréttir segja fréttamenn í fréttatímum;
herma þar frá heimsósómum
og hæstaréttarrefsidómum.
Hæstaréttarrefsidómaromsulengju
lúserar að launum fengu.
Lántakar í sjóinn gengu.
Gengu yfir ólgusjó og ísað landið
hríðarél sem hrelldu lýðinn
sem hús á engin til að skríð'inn
í.
kærleikurinn er fljót sem heldur endalaust áfram að renna og sem tekur engan enda........
Íkarus var eiginlega alger sauður.
Flaug hann yfir haf og hauður
í hita sólar. Féll svo dauður.
Dauður stafur dýrðlinganna drepsótt veldur.
Heilum bæði og hjörtum spillir,
hjörðina af öfgum fyllir.