blóðugt er svo húmorslaus að hún er fyndnari þegar hún sefur.
Upprifinn er svo gjörsamlega hundleiðinlegur að mann langar að saga af sér handlegginn þegar hann byrjar að tala!
Hrútaberið er ótviræður sigurvegari í keppninni: Langheimskasti gestapóinn.
Uppi er líklega bæði ófríðari og ljótari en Hrútaberið. Klárlega leiðinlegri.
Hvæsi veit aldrei hvað það verður.
Hugðir hefur óbeit á jarðaberjum! Heimskur þykir hann eigi. Vísvitandi glettinn er hann.
Hrútaberið er eltihrellir Hannesar Hólmsteins því í augum bersins er Hannes Guð.
Ég vildi að Álfelgur væri sjónvarp, þá gæti ég slökkt á henni.
Álgelgur er Megas.
Anna Panna er alltaf að þvælast fyrir allsstaðar, ruddist framfyrir mig hér og tróð sínum skoðunum ofaná mínar.
Einn mesti dóni og durtur sem ég veit um.
Þarna er nú sönnun þess að þetta leiðinda alteregó er í raun aukaegó.
Viðkomandi er vinsamlegast beðinn um að henda lyklinum af þessu kvikindi og hætta að brúka það hér.
Hvæsi bætir alltaf við eitri út í matinn sem hann eldar. Þess vegna er hann slæmur kokkur.
Línbergur skrúfar alltaf í sundur útvarpsviðtæki aldraðrar móður sinnar þegar hann kemur í heimsókn, og felur síðan skrúfjárnið áður en hann heldur heim brosandi í kampinn.
Bakaradrengurinn er drykkjusvelgur svo mikill að hann drepst alltaf undir sófa / borði / stól / (setjið inn húsgagn að eigin vali) þegar hann er ný sestur.
Gizur heimsækir mágkonu sína reglulega og svissar innihaldi í salt- og sykurstaukum hennar.