Þorska erum þjóðar brot
þolum ekki ýsur
ógeð þurrt og ansans tot
ekkert betr´en lýsur
varð að brjóta upp þorskaþjóð, svo það kæmi ekki ofstuðlun....lýsa er fiskitegund skild ýsunni og jafnan hent jafnharðan í sjóinn aftur...brottkast af bestu sort
Þorskar eru þjóðin sjálf,
og þingmenn vorir líka.
á eilíft klúður, orðagjálf,
okkur að gera ríka?
thoi [Obbobb! aðeins of samtaka. BP]
Lýsur étum lon og don,
langar ekki í skötu.
Ýsan á sér enga von,
úldnar oní fötu.
Fögur stendur í hlíðinni
stúlka hýr á brá.
Langar mig að ríð'inni
og sykri yfir strá
Stráði yfir stúlkuna
á stuttu augnabliki
hrærði við heilastúkuna
hellings englaryki
-
Skjótur bani bíður þess
er feministann þuklar,
vinum hans úr gerir fress
og andskotann upp kuklar.
kuklar margur kveðskap við
kvæða tendrum bálið
Berum ört á Braga svið
brenni - það er málið
Meyjardóminn hefur misst
margur sorga hlýtur
Flöskustúttinn hefur kysst
maður einskynsnýtur Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Brestur í óstöðvandi grát
Meyjardóminn hefur misst
mörgum sóma saknar.
Kargan hefur stútinn kysst
Kata þegar vaknar.
[Rangt er upphafsorðið. BP]
Vakna ég af værum blund
varla kominn tími
til að skella sér í sund
sárvantar mér rími....
ég er að skrifa undir dulnefni, hef oft skrifað hér áður, orðinn blindfullur og því þykir mér vænt um ef einhverjum dettur í hug hver ég er
Ögn af rími ætíð má
einhvursstaðar finna
þú mátt Skabbi þetta fá
ef þjórar soldið minna.
Minn´að drekka dugar ei
drekka skal ég bjóra
þar til sekkur fallegt fley
fleira mun ég þjóra
er þetta orðið vandamál hjá mér? skelli mér í afvötnun yfir helgina, kannski
Þjórar drykki, þambar vín,
þykir mér þú hetja.
Sumir ættu að skammast sín,
þessir sem þig letja.
-
Vindfarir heitar ég hef
hljótt frá mér sendingar gef
loftid er thtungid af thef;
thraut er ad vera med nef.
[Obbobbobb! Rangt upphafsorð. BP]
Letja vart má vininn þann
vísu skaltu heyra
drektu allan andskotann
áfram sífellt meira
Viljið þið gjöra svo vel að fylgja reglunum apakettirnir ykkar!
Nýja vísu skal hefja á síðasta orði þeirrar vísu sem á undan fer.
Annars er ekkert gaman að þessu.
Meira pönk
meira helvíti
meiri andskotans læti
- að öðrum kosti eigiði mig á fæti!
Meira, drekktu miklu meir
minn kæri vinur Skabbi
Þar til þú verður ölvaður
Það ráð gaf Barbapabbi
[Obbobbobb! aðeins of samtaka. BP]