Já, og tókst það, aumingjans kettlingsgreyið, ég sárvorkenndi því.
Hefur þú smalað hundum?
Neibbb
Heur þú upplifað meira en 40 gráðu hita utanhúss?
Nei....örugglega fjári spes.
Hefur þú heimsótt mann í fangelsi?
Nei. Eða... meinar þú á milli klefa? Eða?
Hefur þú prufað að vera grænmetisæta lengur en 6 daga 4 klukkustundir og 38 mínútur? (Fokk hvað það er ógeðslegt!)
Já og alveg sammála...algert ógeð.
Hefur þú verið með klink í vasanum farið inní búð og sett í körfu fyrir nákvæmlega þá upphæð sem þú varst með í vasanum...án þess að telja?
Nei, ég skrifa alltaf gúmmara fyrir öllu saman.
Hefir þú spilað fótbolta á svelli?
Ójá. Oftsinnis.
Hefir verið tekin af yður mynd, hvar þér gerðuð nokkuð, er þér vilduð eigi, að fyrir annarra sjónir kœmi?
Nei. Ekki allavega man ég eftir því.
Hafið þér borið þang í fangi?
Nei. Enda aldrei haft ástæðu til.
Hefur þú sæst við guð og menn, land og ríki, flóru og fánu og jafnvel ára þína alla?
Neibb, og ég er tilbúinn með piparstaukinn.
Hefur þú smakkað piparlausar piparkökur?
Jájá, það er yfirleitt ekki pipar í piparkökum hvort eð er.
Hefur þú velt fyrir þér hvaðan þetta eð kemur í setningunni á undan?
Já - en eigi þó fyrr en núna.
Hafið þjer einhverntíma viljandi sent frá yður innlegg sem var nákvæmlega eins og næsta innlegg á undan ?
Nei, ég hélt að það væri brot á reglunum...
Hefur þú einhvern tíman viljandi reynt að pirra einhvern af því að þér fannst það fyndið?
Nei, ég hélt að það væri brot á reglunum...
Hefur þú einhvern tíman viljandi reynt að pirra einhvern af því að þér fannst það fyndið?
Nei, ég hélt að það væri brot á reglunum...
Hefur þú einhvern tíman viljandi reynt að pirra einhvern af því að þér fannst það ekki fyndið?
Nei. Held ekki.
Hefur þú pirrast yfir einhverjum/einhverri sem var að reyna að pirra þig af því að honum/henni þótti það fyndið?