Enginn Matthías orti þetta. Ekki Davíð Stefánsson . En bókmenntafræðingar segja skáldið fylgja nýrómantíkskustefnunni
(nýdraumsæjisstefnunni).
Nei, ekki Stebbi Höddi. Nei, ekki Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti. En skáldið fæddist nokkrum árum seinna heldur en
Sigurður frá Arnarholti, og dó nokkrum árum seinna en Sigurður.
Þetta er hún Hulda.
Þar sem bæði skamm- og langtímaminni mitt er verulega skaddað, aukinheldur sem ég er á ferðalagi og því ekki með ljóðabækur með mér gef ég frá mér réttinn.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hver orti kvæði sem er ekki lengra en þetta?
Horn skugga
skuggi horns
Er þetta Þróun úr ljóðabókinni Farvegir, eftir Stefán Hörð Grímsson?
Hver orti:
Sú var eitt sinni tíð, að ég átti ekki neinn,
þann er óvin ég nefnt gæti, heiminum í.
Eins og vorhiminn blár var þá hugur minn hreinn,
þar sem hvergi sést vottur um storm eða ský.
Og þótt smávaxnir leikbræður gerðu að mér gys,
eða grættu mig snöggvast, það bráðum leið frá,
því að reiði mín óðar burt fauk eins og fis,
er í friði og ró ég við móðurbrjóst lá.
Þegar eltist ég rann upp sú ógæfutíð,
að ég ósáttur varð við minn samtíðar mann,
og við ristum hvor öðrum hið naprasta níð,
því nornalegt hatur í sálunum brann.
Ég varð þunglyndur sjálfur af hatri til hans,
ég varð harðbrjósta, fálátur, styggur við menn.
Þannig óvild mín til þessa óheillamanns
hefir eitrað mitt líf, svo ég bý að því enn.
Og ég býst við því, ef til vill, aldrei að ná
aftur æskunnar lífsgleði, hvert sem ég fer,
því vofan, sem óvild mín uppvakti þá,
veldur eilífum reimleik í hjartanu á mér.
Á Steininn er Steinarr heitið
staflaust það má vera þó.
Ef giski nú þér þó neitið
naumast þú átt von á ró.
Nei, enginn Davíð eða Jóhannes orti þetta kvæði. Höfundurinn orti margar alkunnar stökur, en ekki mörg alkunn kvæði.