Hákon Aðalsteinsson?
Hjálmar Jónsson, prestur?
Skjótum út í loftið
Ómar Ragnarsson.
Davíð Oddsson
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Neibb!
Höfum það bara svona:
Kæru löndur hvað veit ég
karl um pilsin yðar.
Mér finnst síddin mátuleg
milli hnés og kviðar.
Best að bæta einni við eftir sama höfund um sama höfund:
Ef eg fer, þá fer eg ber,
ferðast eins og Gandhi.
Eg er þekktur, heima og hér,
sem holdi klæddur andi.
Nú hlýtur þetta að koma
Hmmmm. Fyrsta val hefði einmitt verið að giska á Flosa. Af því að fjallað er um pilsasídd finnst mér líklegt að þetta sé frá seinni hluta sjöunda áratugarins eða snemma á þeim áttunda.
Giska út í loftið á Kristján Eldjárn.
Drullusokkur kom með lausnina, K.N.
Nennirðu ekki varpa út nýrri gamalli vísu Drulli nú ellegar nýrri?
Já, ætli ég drullist ekki til þess.
Hver orti?
Í fjarlægum, fögrum skógi
ég friðsælt rjóður veit.
Þar skjálfa geislar í grasi,
þar ganga hindir á beit.
Á bak við blávötn og akra
rís borgin með þys og ljós,
en skóggyðjan felur í faðmi
friðarins hvítu rós.
Þar líður tíminn og líður -
sem laufelskur, mildur blær.
Og yfir nöfnunum okkar
á eikinni börkur grær.
Mattíjass Jökkúms?