Á sprundarbógi spara eg ekki sprautu mína.
Svaðablauta sendinguna,
sökkvi ég í kellinguna.
Bót er að berja með grjóti,
og bölva þér idijóti.
Svo megi ei meir,
Mjási með leir.
Mæða oss brags meður dóti.
Góða vísu gjöra skal,
gylla flúri orða.
Þetta skaltu vanda val,
vel frá hneisu forða.
Mínutunnar mál er það,
milli að koma vísu.
Ég kemst inn á Stöku-Stað,
þó stundum valdi krísu.
Slöku enginn slær hér við,
slaka út vísum mörgum.
Þetta er magnað ljóðalið,
þó lítið eitt af vörgum.
Kindarlega komið er,
og klaufalega málum.
Skautar allur skáldaher,
á svellabunka hálum.
ah Skabbi þarna!
Taugar mínar tel ég þola,
taðlyktina úr þér.
Ég er ekki að væla og vola,
þó vond sé fýla hér.
Á jólunum er japlað fínt,
sem Jésúm aldrei þekkti.
Í fésið næst er kökum klínt,
á kristilegu slekti.
Mestur hver er manna hér,
og má vel aðra hirta.
Hann á stökum hölda sér,
ef hægt er þær að birta.
Varta sauðs er varla hér,
vísuefni gott.
Skamma vil ég skáldaher,
skrípiorðin brott!
Baskann á brottu ég sendi.
burtu með sprengju í hendi.
Sjálfum að eyða,
síðan þá veiða,
sjöhundruð Spánverjum kenndi.
thoi
Á lofti hendi ég hendingu
og hendi svo eftir bendingu
Henni í þig
en hlífðu við mig.
Að sjá frá þér þvílíka sendingu.
thoiObbobbobb! Rangt upphafsorð. BP
Að svara þér er svosem létt,
og svíður ekki undan.
Ég líka veit um veikan blett
svo varastu að "mund'ann".
thoiObbobbobb! Rangt upphafsorð. BP
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Vísa þessi virðist mér,
vera illa kveðin.
Aldrei skal ég aftur þér,
yrkja ljóð, óbeðinn.
thoi
Obbobbobb! Rangt upphafsorð. BP
Vísna hér vandfýsni
varla, sé ek karla.
Hratið hingað ratar
hrátt án bragarhátta
Argir varla vargar
virðast hér um hirða.
Hvað á hverju blaði
hvítu, dritað er skíti.
thoi
Obbobbobb! Eigi ...